Flugmaður sem náði að nauðlenda í Amason fórst við björgun Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2017 14:33 Rafbúnaður vélarinnar bilaði yfir Amasonskóginum og flugmaðurinn lenti á fljóti. Skjáskot/Youtube
Brasilískur flugmaður hrapaði til bana þegar björgunarþyrla reyndi að bjarga honum úr Amasonfrumskóginum. Maðurinn hafði náð að nauðlenda vél sinni á fljóti og bjarga farþega sínum. Elcides Rodrigues Pereira, 64 ára gamall flugmaður vélarinnar, og Ednilson Cardoso, 28 ára gamall sjúkraliði, voru að heimsækja afskekta ættbálka í frumskóginum til að veita þeim heilbrigðisþjónustu þegar rafbúnaður vélarinnar bilaði á miðvikudag í síðustu viku. Pereira náði hins vegar að lenda vélinni í á sem tilheyrir vatnasviði Amasonfljótsins. Sökk vélin á nokkrum sekúndum en mönnunum tókst að komast á þurrt land, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC.Náði nauðlendingunni á myndbandTvímenningarnir þurftu að bíða klukkustundum saman eftir björgun þar sem erfitt var að ná til þeirra í frumskóginum. Björgunarmenn hentu reipi niður úr þyrlu en Rodrigues missti tak á því og fékk ofan í Catrimani-ána. Hann fannst látinn á laugardag. Í frétt BBC kemur fram að björgunarliðið var á vegum eigenda flugvélarinnar en ekki yfirvalda. Sjúkraliðinn festi á filmu augnablikin þegar flugmaðurinn sveif vélinni til lendingar á ánni. Það hefur verið birt í brasilískum fjölmiðlum, þar á meðal Folha de Sao Paulo.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira