Vara við þrautseigri tegund lekanda Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. júlí 2017 06:47 Lekandi smitast með óvörðu kynlífi og orsakast af bakteríunni neisseria gonorroheae. Vísir/Getty
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, varar við stórhættulegri tegund lekanda sem berst nú manna á milli og hefur þróað með sér ónæmi fyrir sýklalyfjum. Stofnunin kennir munnmökum og samdrætti í smokkanotkun um ástandið. BBC greinir frá. WHO segir lekanda nú mun erfiðari viðureignar en áður og í sumum tilfellum sé ómögulegt að meðhöndla hann. Lekandi, sem berst manna á milli með kynmökum, hefur þróað með sér ónæmi fyrir ýmsum sýklalyfjum. Sérfræðingar segja stöðuna „nokkuð ófrýnilega“ og að ekki sé útlit fyrir að mörg ný lyf komi á markað í bráð. Um 78 milljónir manna smitast af lekanda árlega en hann getur valdið ófrjósemi.„Lekandi er mjög klár pest" Teodora Wi, sérfræðingur í smitsjúkdómum hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, segir að greind hafi verið þrjú tilfelli af lekanda, í Japan, Frakklandi og Spáni, þar sem ekkert dugaði til að meðhöndla sjúklingana. „Lekandi er mjög klár pest, í hvert skipti sem þú kynnir til söguna nýja tegund sýklalyfja til að meðhöndla lekanda, þá þróar hann með sér ónæmi fyrir þeim." Þá hafa sérfræðingar sérstaklega áhyggjur af því að flest tilfelli lekandasýkinga greinast nú í fátækum löndum þar sem erfiðara er að greina ónæmi fyrir sýklalyfjum. WHO kallar nú eftir því að lönd heimsins fylgist með útbreiðslu lekanda, sem hefur þróað með sér ónæmi, og fjárfesti í nýjum lyfjum. Lekandi smitast með óvörðu kynlífi og orsakast af bakteríunni neisseria gonorroheae. Einkenni geta meðal annars verið þykk, græn eða gul útferð úr kynfærum, sársauki við þvaglát og milliblæðingar hjá konum. Sumir sjúklingar fá aldrei nein einkenni vegna sjúkdómsins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira