Þrettán kynlífsþrælar leystir úr prísund á Spáni Kjartan Kjartansson skrifar 4. júlí 2017 22:43 Vændishringurinn sem hélt konunum nauðugum er sagður hafa reynt að stjórna markaðinumí strandbænum Puerto Banús. Vísir/Getty
Lögreglan á Spáni hefur bjargað þrettán konum sem voru neyddar til vændis nærri strandbænum Marbella. Talið er að konurnar séu búlgarskar en 34 grunaðir meðlimir glæpagengis voru handteknir í aðgerðum lögreglu. Í yfirlýsingu frá lögreglunni kemur fram að gengið hafi flutt inn konurnar frá fátækum svæðum Búlgaríu og hótað þeim og fjölskyldum þeirra ofbeldi ef þær óhlýðnuðust. Þær voru látnar selja sig á götum strandbæjarins Puerto Banús. Konurnar eru einnig sagðar hafa verið látnar stela frá „viðskiptavinum“ sínum og grunur leikur á að einhverjum þeirra hafi verið gefin lyf. Rannsókn á mansalshringnum hófst eftir ábendingu frá konu sem slapp úr greipum hans fyrir þremur árum. Afhjúpaði lögreglan á endanum alþjóðlegt net glæpamanna sem starfaði aðallega á Spáni og í Búlgaríu, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Flestar handtökurnar voru gerðar á Spáni en átta manns voru handteknir í Búlgaríu.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira