Skoðun

Skapandi og græn fjarheilbrigðisþjónusta

Óttarr Proppé skrifar
Víða innan heilbrigðisþjónustunnar hér á landi er hröð þróun fjarheilbrigðisþjónustu, þ.e. þjónustu sem er veitt í gegnum rafræn samskipti og margs konar tækni. Fyrirmyndirnar eru víða að t.d. frá Norðurlöndunum, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Með fjarheilbrigðisþjónustu er aðgengi að þjónustu bætt verulega og heilsufarslegar upplýsingar fluttar á milli með tækni sem síðan miðlar til baka niðurstöðum greininga og ráðgjöf, annað hvort beint til einstaklingsins sem í hlut á eða með milligöngu annars heilbrigðisstarfsmanns.

Frumkvæði heilsugæslunnar á Kirkjubæjarklaustri var vendipunktur í fjarheilbrigðisþjónustu hér á landi og hefur haft áhrif á þróun slíkrar þjónustu víða um land. Árið 2014 lögðu þingmenn Bjartrar framtíðar auk fulltrúa allra stjórnmálaflokka fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Í framhaldinu var settur á starfshópur sem skilaði tillögum í maí 2016 að stefnu og aðgerðaráætlun til næstu ára í fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Ég hef sem heilbrigðisráðherra lagt sérstaka áherslu á að styðja við fjarheilbrigðisþjónustu á sem flestum sviðum heilbrigðismála. Nú eru mörg áhugaverð og mikilvægt verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu hluti af heilbrigðisþjónustunni hér á landi og má þar nefna þjónustuna á Kirkjubæjarklaustri sem hefur aukið verulega möguleika t.d. á að greina hvort um alvarleg veikindi er að ræða með því að flytja upplýsingar um heilsufarsmat frá tækjum sem eru staðsett í sjúkrabílum til læknis sem getur verið staddur í langri fjarlægð frá sjúklingnum.

Sömuleiðis er nú í þróun þjónusta til sjómanna á haf út með hjálp tækja og þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Enn fremur má nefna þróunarverkefni um viðtöl við sálfræðinga í gegnum internetið sem bæta verulega úr aðgengi að sálfræðiþjónustu og mörgum þykja betri kostur en hefðbundið viðtal. Þá er mikilvægur liður liður í fjarheilbrigðisþjónustu ráðgjöf  í gegnum síma og internet og þar er nú stigið mikilvægt skref með þróun gagnvirkrar heimasíðu heilsuveran.is og símaþjónusta um heilbrigðismál í símanum 1700.

Ávinningur fjarheilbrigðisþjónustu er margs konar og fyrir utan bætt aðgengi vegna t.d. fjarlægðar frá heilbrigðisstarfsmanni má nefna að fjarheilbrigðisþjónusta getur eflt þverfaglega teymisvinnu og þar með bætt gæði þjónustunnar. Einnig má nefna minni kostnað vegna ferðalag sem sömuleiðis hefur jákvæð áhrif á umhverfið með minni eldsneytisnotkun.

Höfundur er formaður Bjartrar framtíðar og heilbrigðisráðherra.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×