Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar 21. október 2026 18:00 Skjár 1 fagnaði nýverið þriggja ára afmæli samfelldra útsendinga. Á þessum þremur árum hefur verið byggt upp sjálfstætt íslenskt sjónvarp sem stendur á talsvert öðrum grunni en hefðbundnar sjónvarpsstöðvar. Stöðin er ókeypis, krefst hvorki áskriftar né innskráningar og er dreift beint til almennings í gegnum vefinn, snjallsjónvörp, streymistæki og öpp. Skjár 1 er nú aðgengilegur á flestum helstu snjallsjónvarps og streymiskerfum landsins, meðal annars Apple TV, Android TV, Google TV, LG TV, Samsung TV, Titan OS fyrir Philips og JVC og Amazon Fire TV. Þessi uppbygging hefur átt sér stað án þess að Skjár 1 njóti þeirrar dreifingar, fjárhagslegu burða eða markaðsstyrks sem stærri fjölmiðlafyrirtæki búa yfir. Verkefnið hefur því frá upphafi byggst á þrautseigju, nýtingu nýrrar tækni og þeirri trú að enn sé pláss fyrir sjálfstæðan íslenskan sjónvarpsmiðil. Þögn er einnig afstaða Enginn fjölmiðill er skyldugur til að fjalla um Skjá 1. Ritstjórnir eiga að vera sjálfstæðar og ákveða sjálfar hvaða mál þær telja eiga erindi við lesendur, hlustendur og áhorfendur. Sú ritstjórnarlega sjálfstjórn breytir þó ekki þeirri staðreynd að val fjölmiðla hefur afleiðingar. Þegar nýr íslenskur fjölmiðill byggir upp dreifikerfi frá grunni, nær aldreifingu í snjalltækjum landsmanna og heldur úti samfelldum útsendingum árum saman án þess að stærstu innlendu miðlarnir telji það fréttnæmt, er eðlilegt að spyrja hvaða starfsemi fær athygli og hvaða starfsemi er látin liggja milli hluta. Þögn er nefnilega einnig afstaða, jafnvel þótt hún sé ekki sett fram í leiðara eða fréttaskýringu. Skjár 1 hefur ítrekað sent upplýsingar um þróun stöðvarinnar, nýjar dreifileiðir og dagskrárbreytingar. Við höfum ekki farið fram á lofsamlega umfjöllun eða sérstaka meðferð. Aðeins að starfsemin sé metin á eigin forsendum og að almenningur fái upplýsingar um að hér sé starfrækt ókeypis íslensk sjónvarpsstöð sem hann getur nálgast með einföldum hætti. Auglýsingaféð fer þangað sem árangurinn fæst Þegar innlendir miðlar kjósa að upplýsa almenning ekki um tilvist, uppbyggingu og þróun Skjás 1 stendur stöðin frammi fyrir fáum öðrum raunhæfum kostum en að kynna þjónustuna sjálf. Sú kynning fer nú að verulegu leyti fram í gegnum Facebook, Instagram og aðra erlenda stafræna auglýsingamiðla. Þar er hægt að ná beint til þeirra hópa sem hafa áhuga á kvikmyndum, klassísku sjónvarpsefni og ókeypis sjónvarpsþjónustu. Þar fást jafnframt mælanlegar upplýsingar um birtingar, viðbrögð, heimsóknir á vef og kostnað við að ná til hvers notanda. Árangurinn hefur verið ótvíræður. Kynning Skjás 1 á samfélagsmiðlum hefur náð langt út fyrir hóp þeirra sem þegar fylgja stöðinni og skilað verulegri aukningu í heimsóknum á vef hennar. Það sýnir að áhuginn er til staðar. Almenningur þurfti einfaldlega að fá upplýsingar um þjónustuna. Þarna skapast þó sérkennileg staða. Íslenskt fjölmiðlafyrirtæki þarf að greiða erlendum tæknirisum fyrir að koma upplýsingum um íslenska starfsemi til íslensks almennings, vegna þess að innlendir miðlar sýna starfseminni engan áhuga. Um leið er reglulega rætt um nauðsyn þess að verja íslenska fjölmiðlun og halda auglýsingatekjum innanlands. Það markmið er skiljanlegt og mikilvægt. En ábyrgðin getur ekki eingöngu hvílt á auglýsendum. Innlendir miðlar verða einnig að skapa ástæður fyrir íslensk fyrirtæki til að eiga við þá viðskipti. Viðskipti og samskipti þurfa að vera gagnkvæm Skjásýn ehf. hefur takmarkað fjármagn til kynningar, enda er Skjár 1 opin og án áskriftar, auk þess sem stöðin er ekki með auglýsingar á milli kvikmynda og verður að verja því þar sem það skilar árangri. Það væri óeðlilegt að ráðstafa því fjármagni til innlendra miðla sem hafa sjálfir sýnt starfsemi félagsins engan áhuga og ekki talið uppbyggingu þess eiga erindi við almenning. Þetta snýst ekki um að kaupa sér ritstjórnarlega umfjöllun. Slíkt væri óeðlilegt og færi gegn grundvallarreglum sjálfstæðrar fjölmiðlunar. Þetta snýst um eðlilegt samband milli aðila á sama markaði, gagnkvæma virðingu og þá staðreynd að viðskipti byggjast einnig á trausti og fyrri samskiptum. Ef þeir miðlar sem nú líta fram hjá Skjá 1 leita síðar til Skjásýnar ehf. eftir auglýsingaviðskiptum, samstarfi, upplýsingum, myndefni eða öðru framlagi verður ekki hjá því komist að líta til þeirrar afstöðu sem þeir hafa sjálfir sýnt félaginu. Skjásýn mun áfram koma upplýsingum um Skjá 1 til almennings, líklega einungis með aðstoð erlendra miðla framvegis. Við hefðum kosið að stærri hluti þess fjármagns sem fer í kynningu stöðvarinnar yrði eftir í íslensku fjölmiðlakerfi. Til þess þarf hins vegar gagnkvæman vilja. Eins og gamla orðatiltækið segir: „Sá sem vill ekki þegar hann fær, fær ekki þegar hann vill.“ Höfundur er forstöðumaður Skjás 1. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun