Yfir hundrað létust í flugslysinu á Kúbu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 18. maí 2018 20:09 Yfir hundrað manns eru látnir. Vísir/afp
Yfir hundrað manns létust þegar Boeing 737-flugvél brotlenti skömmu eftir flugtak í dag. Þetta hefur breska ríkisútvarpið BBC eftir kúbverskum ríkisfjölmiðli. Viðbragðsaðilar náðu að koma þremur farþegum til bjargar en þeir voru dregnir úr flaki flugvélarinnar. Þeir liggja nú þungt haldnir á spítala. Um borð í vélinni voru hundrað og fjórir farþegar auk níu áhafnarmeðlima. „Nýjustu fréttir lofa ekki góðu því svo virðist sem fórnarlömbin séu mörg,“ segir Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, sem mætti á vettvang slyssins. Díaz-Canel tók við embætti forseta Kúbu 19. apríl síðastliðinn. Viðbragðsaðilum hefur tekist að slökkva eldinn og unnið er að því að bera kennsl á hina látnu. Yfirvöld hafa hrundið af stað rannsókn á tildrögum flugslyssins. Flugvélin var á leið frá Havana, höfuðstaðar Kúbu, austur til kúbversku borgarinnar Holguin. Hún brotlenti á hraðbraut á milli Santiago de las Vegas og Boyeros, nærri Jon Martin flugvellinum í Havana.
Kúba Tengdar fréttir Brotlenti skömmu eftir flugtak í Havana Hundrað og fjórir farþegar voru um borð í vélinni. 18. maí 2018 18:11 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgara liggja í valnum eftir árásir Rússa Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira
Brotlenti skömmu eftir flugtak í Havana Hundrað og fjórir farþegar voru um borð í vélinni. 18. maí 2018 18:11