Sautján látnir og tugir særðir í árás á skóla á Krímskaga Samúel Karl Ólason skrifar 17. október 2018 13:53 Upprunalega var því haldið fram að um sprengjuárás hafi verið að ræða en rússneskir rannsakendur segja nú að öll fórnarlömbin hafi verið skotin. EPA/KERCH.FM
Minnst sautján eru látnir og tugir særðir eftir árás í skóla á Krímskaga. Átján ára nemandi skólans hóf skothríð í skólanum og beindi hann byssunni svo að sjálfum sér. Yfirvöld Krímskaga, sem Rússar innlimuðu af Úkraínu árið 2014, segja árásarmanninn hafa heitið Vladislav Roslyakov. Um 850 táningar stunda nám í umræddum skóla í Kerch. Upprunalega var því haldið fram að um sprengjuárás hafi verið að ræða en rússneskir rannsakendur segja nú að öll fórnarlömbin hafi verið skotin. Þar að auki var talið að þetta hefði verið hryðjuverkaárás en nú er árásin skilgreind sem fjöldamorð, samkvæmt BBC.Yfirvöld Rússlands hafa gert fjórar herflugvélar tilbúnar til að flytja særða á hersjúkrahús, reynist þörf á því.Samkvæmt Reuters liggur ástæða árásarinnar ekki fyrir.Olga Grebennikova, skólastjóri, lýsti aðstæðum í samtali við rússneska fjölmiðla. Hún sagði lík hafa verið á víð og dreif um skólann. Hún sagði þó einnig að hópur manna hefði ráðist á skólann og það hefði gerst skömmu eftir að hún yfirgaf svæðið. Hún sagði þá hafa kastað sprengjum og að þeir hefðu skotið alla sem á vegi þeirra urðu. Nemendur sem lýst hafa árásinni tala einnig um að þau hafi heyrt sprengingar. Foreldrum barna í öðrum skólum og leikskólum borgarinnar hefur verið gert að sækja börn sín í öryggisskyni.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Sjá meira