Fallið frá kaupum Icelandair Group á WOW Air Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. nóvember 2018 09:07 Ekkert verður af kaupum Icelandair á WOW. VÍSIR/VILHELM
Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair Group á Wow air en kaupsamningur var undirritaður þann 5. nóvember síðastliðinn. Þetta er sameiginleg niðurstaða beggja aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Greint var frá því fyrr í vikunni að ljóst væri að ólíklegt mætti teljast að allir fyrirvarar í kaupsamningi um kaup félagsins á WOW yrðu uppfylltir fyrir hluthafafund Icelandair, sem fram fer á morgun. Í tilkynningu Icelandair segir að staðan sé óbreytt hvað þetta varðar. „Því er ólíklegt að stjórn Icelandair Group geti mælt með því við hluthafa félagsins að þeir samþykki kaupsamninginn. Þá hefur stjórn ekki í hyggju að leggja til við hluthafafund tillögu um að fresta ákvarðanatöku um kaupsamninginn.“Sjá einnig: Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð Í ljósi þessarar stöðu sé það því sameiginleg niðurstaða beggja aðila að falla frá fyrrnefndum kaupsamningi. Auk þess að fá samþykki hluthafafundar Icelandair og Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu í áreiðanleikakönnun hefðu forsvarsmenn flugfélaganna þurft að leita lausna í hinum ýmsu deilumálum sem enn stóðu út af, áður endanlega var ákveðið að falla frá kaupunum. Skuldabréfaeigendur WOW air hefðu jafnvel þurft að samþykkja tugprósenta afskriftir af höfuðstól sínum hefðu kaupin átt að ganga eftir. WOW Air hefur boðað til starfsmannafundar í höfuðstöðvum flugfélagsins í Borgartúni klukkan 10. Þar má ætla að næstu skref - og um leið framtíð félagsins - verði rædd.Skúli Mogensen býst við góðum fréttum af framtíð WOW á næstunni.Fréttablaðið/AntonBogi Nils Bogason, starfandi forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningunni að ljóst sé að kaupin muni ekki ganga eftir. „Stjórn og stjórnendur beggja félaga hafa unnið að þessu verkefni af heilum hug. Niðurstaðan er vissulega vonbrigði. Stjórnendum WOW air færi ég þakkir fyrir mjög gott samstarf í þessu verkefni síðustu vikur. Jafnframt óskum við eigendum og starfsfólki félagsins alls hins besta,“ segir Bogi. Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW Air, segir í sömu tillkynningu að það hafi verið ljóst strax í upphafi að það hafi verið „metnaðarfullt verkefni“ að klára alla fyrirvara við kaupsamninginn á svo skömmum tíma. „Við þökkum stjórnendum Icelandair Group fyrir samstarfið í þessu krefjandi verkefni og óskum sömuleiðis stjórnendum og starfsfólki Icelandair Group alls hins besta.“Sjá einnig: Þurfi að taka á sig tugprósenta afskriftirÍ bréfi sem Skúli sendi á skuldabréfaeigendur í félaginu kom fram að staða WOW væri verri en áður hafði verið talið. Margvíslegir þættir byggju þar að baki; til að mynda óvægin umræða um fjárhagsstöðu félagsins og gjaldþrot Primera Air. Þá ákvað flugfélagið að fækka um fjórar þotur í flota sínum fyrr í þessari viku. Að sama skapi kom fram í vikunni að „vaxandi óþreyju“ gæti meðal eigenda flugvéla sem eru í rekstri WOW air. Óttast leigusalarnir, sem eru aðallega félög sem sérhæfa sig í fjármögnun og útleigu flugvéla, að samruni flugfélagsins og Icelandair gangi ekki eftir og að WOW air takist ekki að standa í skilum um næstu mánaðamót með greiðslu afborgana. Fjármálastjóri WOW tók þó af allan vafa í gær með launagreiðslur til starfsmanna. Þær verði „að sjálfsögðu“ greiddar út á morgun.
Fréttir af flugi Icelandair WOW Air Tengdar fréttir Óþreyju gætir meðal leigusala WOW air Mörg mál standa enn út af í viðræðum Icelandair og WOW air. Stjórnendur Icelandair vilja ekki að flugmenn WOW air verði á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla í rekstri WOW air. 28. nóvember 2018 06:00 Lofar starfsfólki WOW launum Starfsfólk WOW Air mun fá greidd laun um næstu mánaðamót. 28. nóvember 2018 11:43 Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð. 29. nóvember 2018 09:21 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
Óþreyju gætir meðal leigusala WOW air Mörg mál standa enn út af í viðræðum Icelandair og WOW air. Stjórnendur Icelandair vilja ekki að flugmenn WOW air verði á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla í rekstri WOW air. 28. nóvember 2018 06:00
Lofar starfsfólki WOW launum Starfsfólk WOW Air mun fá greidd laun um næstu mánaðamót. 28. nóvember 2018 11:43
Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð. 29. nóvember 2018 09:21