Stjarnan, Skallagrímur , ÍR og Valur verða í pottinum í 8-liða úrslitum Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 15. desember 2018 18:25 Rodriguez átti frábæran leik hjá Stjörnunni vísir/ernir
Stjarnan, Skallagrímur og ÍR komust öll í 8-liða úrslit Geysisbikar kvenna í dag. Stjarnan mætti KR í stórleik 16-liða úrslitanna en Danielle Rodriguez fór enn einu sinni á kostum í liði Stjörnunnar í öruggum sigri, 82-64. Rodriguez náði þrefaldri tvennu en hún skoraði 24 stig, tók 11 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Þá átti Bríet Sif Hinriksdóttir einnig góðan leik í liði Stjörnunnar en hhún skoraði 22 stig og gaf 7 fráköst. Ragnheiður Benónísdóttir átti góða innkomu af bekknum og skoraði 12 stig og tók 4 fráköst. Kiana Johnson var stigahæst í liði KR en hún skoraði 16 stig, tók 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. ÍR og Keflavík B áttust við í hörkuleik og réðust úrslitin á lokasekúndum leiksins. Allt var í járnum í leiknum og voru liðin jöfn í hálfleik, 36-36. Svipað var upp á teningnum í síðari hálfleik og Jóhanna Herdís Sævarsdóttir kom ÍR-ingum yfir er 11 sekúndur voru til leiksloka. Keflavík fékk tækifæri til þess að vinna leikinn og komast áfram en Eydís Eva Þórisdóttir brást bogalistinn á lokasekúndu leiksins og sigur ÍR-inga staðreynd. Nína Jenný Kristjánsdóttir var stigahæst í liði ÍR en hún skoraði 25 stig og tók 8 fráköst. Í liði Keflavíkur var Eydís Eva stigahæst með 19 stig. Skallagrímur vann tiltölulega þægilegan sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni. Skalalgrímur leiddi með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta en Skallagrímur jók svo forystu sína til muna í öðrum leikhluta, og staðan 49-31 í hálfleik. Skallagrímur jók forystu sína í þriðja leikhluta og lokatölur í leiknum urðu 62-91, Skallagrím í vil. Skallagrímur, ÍR og Stjarnan verða því í pottinum er dregið verður í 8-liða úrslit bikarsins. Valur verður einnig í pottinum en Hamar gaf leik sinn. Valur fær því dæmdan 20-0 sigur. Á morgun og mánudag ræðst svo hvaða fjögur lið bætast við í pottinn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira