Nýjasta vonarstjarna Barcelona íhugaði að ganga í raðir Tottenham síðasta sumar Anton Ingi Leifsson skrifar 4. apríl 2019 06:00 Frenkie fyrir leik Ajax á dögunum.
Miðjumaðurinn, Frenkie De Jong, segir að hann hafi verið nálægt því að ganga í raðir Tottenham síðasta sumar en Frenkie er einn efnilegasti leikmaður heims. Hann gengur í raðir Barcelona næsta sumar frá Ajax en hann var seldur fyrir 65 milljónir punda. Þar skrifar hann undir fimm ára samning en síðasta sumar íhugaði hann tilboð frá Tottenham. „Ég velti fyrir mér tilboði Tottenham vel og lengi. Tottenham er stöðugur klúbbur sem er alltaf að verða betri,“ sagði Hollendingurinn í samtlai við FourFourTwo. „Þeir gefa ungum leikmönnum tækifæri og mér finnst Pochettino stjóri sem bætir unga leikmenn. Mér líkar vel við hvernig þeir spila og ég held að það hafi hentað mér vel.“ Það hefur gengið eins og í sögu hjá Ajax í Meistaradeildinni þetta tímabilið því liðið er komið í átta liða úrslitin eftir að hafa slegið út Real Madrid. Frenkie segir að tímapunkturinn hafi ekki verið réttur til þess að yfirgefa Ajax síðasta sumar. „Þetta var ekki rétti tímapunkturinn. Ég var ekki búinn hjá Ajax þar sem ég hafði ekki spilað fullt tímabil í minni stöðu. Ég var einnig meiddur á þessum tímapunkti svo ég hugsaði: Ekki strax. Ég vildi vera eitt ár lengur hjá Ajax, að minnsta kosti.“
Fótbolti Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Breiðablik - Keflavík | Blikar komnir á skrið Íslenski boltinn Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira