Bretar gefa grænt ljós á 5G kerfi Huawei Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. apríl 2019 14:00 Í FT kemur fram að ákvörðun Þjóðaröryggisráðs Bretlands um að leyfa Huawei að taka þátt í uppbyggingu kerfanna hafi verið tekin einróma. Nordicphotos/Getty
Theresa May forsætisráðherra Bretlands og meðráðherrar hennar hafa heimilað kínverska fjarskiptarisanum Huawei að taka þátt í uppbyggingu á fimmtu kynslóðar farsímakerfum (5G) í Bretlandi þrátt fyrir varnaðarorð stjórnvalda í Bandaríkjunum um að það gæti stefnt samvinnu ríkjanna í öryggis- og varnarmálum í uppnám. Ákvörðunin var tekin af Þjóðaröryggisráði Bretlands í gær að því er fram kemur í Financial Times. Ákvörðun um að heimila Huawei að taka þátt í upppbyggingu á 5G kerfum á Bretlandseyjum var tekin þrátt fyrir að Gavin Williamson, varnarmálaráðherra, hafi lýst áhyggjum af áhrifum þess á samband Breta við stjórnvöld í Washington.Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.AP/Bilal HusseinMike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í febrúar að bandarísk stjórnvöld gætu ekki deilt upplýsingum með ríkjum sem heimiluðu Huawei að taka þátt í uppbyggingu á fimmtu kynslóðar farsímakerfum. Embættismenn vestanhafs hafa lengi þrýst á breska kollega sína að hafna Huawei sem birgi fyrir uppbygginu á 5G farsímakerfum.Ekki borið skugga á samskipti Bretlands og Kína Bretland er hluti af „Five Eyes“ öryggisbandalaginu ásamt Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Á meðan bæði Ástralir og Nýsjálendingar hafa samþykkt að útiloka Huawei hafa Bretar alltaf verið fremur opnir. Þá hefur ekki borið skugga á diplómatísk samskipti Breta og Kínverja en Philip Hammond, fjármálaráðherra Bretlands, fer á næstunni til Kína til að styðja við þátttöku Breta í samgönguáætlun kínverskra stjórnvalda (Belt and Road Initiative). Í FT kemur fram að ákvörðun Þjóðaröryggisráðs Bretlands um að leyfa Huawei að taka þátt í uppbyggingu kerfanna hafi verið tekin einróma. Ákvörðunin felur hins vegar í sér að Huawei mun ekki koma nálægt svokölluðum miðlægum kerfum eða kjarnakerfum en það eru þau kerfi sem geyma viðkvæmar upplýsingar eins og persónuupplýsingar notenda og greiðsluupplýsingar þeirra. Annar búnaður, sem Huawei getur orðið birgir fyrir eru loftnet, símstöðvar, ýmis fjarskiptavirki og sendingarbúnaður. Upplýsingar streyma í gegnum þessar tegundir búnaðar en eru ekki vistaðar þar og þar með er ekki talin hætta á því að upplýsingunum verði miðlað til óviðkomandi aðila.Theresa May hefur gefið grænt ljós á 5G kerfi Huawei.Vísir/GettyÍ janúar á þessu ári gaf bandaríska dómsmálaráðuneytið út ákæru á hendur Huawei fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Í kjölfarið tók Vodafone Group í Evrópu ákvörðun um að setja kaup á búnaði frá Huawei í biðstöðu. Ákvörðunin gæti haft áhrif á uppbyggingu á 5G kerfum hér á landi eins og greint hefur verið frá.Skylt að deila upplýsingum um netöryggi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað hins vegar í mars síðastliðnum að verða ekki við kröfum bandarískra stjórnvalda um að útiloka Huawei frá uppbyggingu á 5G farsímakerfum í aðildarríkjum ESB. Aðildarríkjunum verður gert skylt að deila upplýsingum sín á milli um netöryggisógnir við uppbyggingu á 5G kerfum og þannig móta stefnu um hvernig eigi að takast á við slíkar ógnir. Huawei er stærsti birgir í heiminum á sviði farsímakerfa. Þá er fyrirtækið næstsöluhæsti framleiðandi snjallsíma á heimsvísu á eftir Samsung. Forsvarsmenn Huawei hafa ávallt hafnað því að fyrirtækinu sé í reynd stjórnað af kínverskum stjórnvöldum og vísað því á bug að hægt sé að nota búnað fyrirtækisins við njósnir. Þegar ákvörðun Þjóðaröryggisráðs Bretlands lá fyrir lét talsmaður Huawei hafa eftir sér við FT að bresk fyrirtæki og neytendur myndu nú njóta aðgangs að hröðustu og áreiðanlegustu farsímakerfunum. Þá væri ánægjulegt að stjórnvöld í Bretlandi nálguðust ákvarðanir sínar um mikilvæg mál út frá staðreyndum.
Bandaríkin Bretland Huawei Kína Tengdar fréttir CIA sakar Huawei um njósnir Leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur sakað Huawei um að þyggja fjármagn frá undirstofnunum varnarmálaráðuneytis Kína. 21. apríl 2019 10:27 Ákæra á hendur Huawei gæti tafið uppbyggingu 5G kerfa Vodafone Group í Evrópu hefur sett kaup á búnaði frá kínverska tæknifyrirtækinu Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Ákvörðunin gæti haft áhrif á uppbyggingu á 5G kerfum hér á landi. 30. janúar 2019 19:30 Kínverskur risi í klandri Bandaríkin standa fyrir samstilltu átaki gegn kínverska tæknirisanum Huawei. Kínverjarnir eru sakaðir um njósnir fyrir hið opinbera, brot á viðskiptaþvingunum og hugverkaþjófnað. Þeir neita þó alfarið sök og stjórnvöld í Kína segja málið einfaldlega pólitískt. Það kemur á versta tíma fyrir Huawei sem tekur nú þátt í 5G-bylgjunni. 2. febrúar 2019 09:30 Huawei stefnir Bandaríkjastjórn vegna banns Bandarísk stjórnvöld bönnuðu alríkisstofnunum að nota búnað kínverska tæknirisans. Fyrirtækið telur lagaákvæði sem bannið byggir á stangast á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. 7. mars 2019 07:30 Huawei neitaði alfarið sök fyrir dómi James Cole, lögmaður kínverska tæknirisans Huawei, sagði fyrirtækið alfarið saklaust þegar þrettán liða ákæra bandaríska dómsmálaráðuneytisins fór fyrir alríkisdómstól í New York í gær. 15. mars 2019 10:45 Huawei fagnar afstöðu ESB Ríkjum Evrópusambandsins verður gert skylt að deila gögnum sín á milli um netöryggisógnir við uppbyggingu 5G-farsímanetkerfis og þannig móta stefnu í hvernig á að takast á við slíkar ógnir fyrir lok árs. 27. mars 2019 06:15 Huawei kynnti enn dýrari samlokusíma Tæpri viku eftir að Samsung reið á vaðið hefur kínverska tæknifyrirtækið Huawei kynnt sinn eigin samanbrjótanlegan snjallsíma. 25. febrúar 2019 08:45 Stjórnvöld í Kanada tilbúin að framselja fjármálastjóra Huawei til Bandaríkjanna Lokaákvörðun um framsal verður í höndum dómstóla í Kanada. 1. mars 2019 19:37 Setja kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu Vodafone Group hefur sett kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Þá hefur BT Group fjarlægt búnað Huawei úr farsímakerfum sínum í Bretlandi. 30. janúar 2019 12:15 Versnandi samband Kanada og Kína Yfirvöld í Kína hafa ákært Kanadamennina Michael Kovrig, fyrrverandi erindreka, og Michael Spavor athafnamann fyrir njósnir. 5. mars 2019 08:00 Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Kristján ráðinn til Advania Viðskipti innlent Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira
CIA sakar Huawei um njósnir Leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur sakað Huawei um að þyggja fjármagn frá undirstofnunum varnarmálaráðuneytis Kína. 21. apríl 2019 10:27
Ákæra á hendur Huawei gæti tafið uppbyggingu 5G kerfa Vodafone Group í Evrópu hefur sett kaup á búnaði frá kínverska tæknifyrirtækinu Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Ákvörðunin gæti haft áhrif á uppbyggingu á 5G kerfum hér á landi. 30. janúar 2019 19:30
Kínverskur risi í klandri Bandaríkin standa fyrir samstilltu átaki gegn kínverska tæknirisanum Huawei. Kínverjarnir eru sakaðir um njósnir fyrir hið opinbera, brot á viðskiptaþvingunum og hugverkaþjófnað. Þeir neita þó alfarið sök og stjórnvöld í Kína segja málið einfaldlega pólitískt. Það kemur á versta tíma fyrir Huawei sem tekur nú þátt í 5G-bylgjunni. 2. febrúar 2019 09:30
Huawei stefnir Bandaríkjastjórn vegna banns Bandarísk stjórnvöld bönnuðu alríkisstofnunum að nota búnað kínverska tæknirisans. Fyrirtækið telur lagaákvæði sem bannið byggir á stangast á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. 7. mars 2019 07:30
Huawei neitaði alfarið sök fyrir dómi James Cole, lögmaður kínverska tæknirisans Huawei, sagði fyrirtækið alfarið saklaust þegar þrettán liða ákæra bandaríska dómsmálaráðuneytisins fór fyrir alríkisdómstól í New York í gær. 15. mars 2019 10:45
Huawei fagnar afstöðu ESB Ríkjum Evrópusambandsins verður gert skylt að deila gögnum sín á milli um netöryggisógnir við uppbyggingu 5G-farsímanetkerfis og þannig móta stefnu í hvernig á að takast á við slíkar ógnir fyrir lok árs. 27. mars 2019 06:15
Huawei kynnti enn dýrari samlokusíma Tæpri viku eftir að Samsung reið á vaðið hefur kínverska tæknifyrirtækið Huawei kynnt sinn eigin samanbrjótanlegan snjallsíma. 25. febrúar 2019 08:45
Stjórnvöld í Kanada tilbúin að framselja fjármálastjóra Huawei til Bandaríkjanna Lokaákvörðun um framsal verður í höndum dómstóla í Kanada. 1. mars 2019 19:37
Setja kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu Vodafone Group hefur sett kaup á frekari búnaði frá Huawei í biðstöðu eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið höfðaði sakamál á hendur fyrirtækinu fyrir stórfelldan hugverkaþjófnað og brot á viðskiptaþvingunum gagnvart Íran. Þá hefur BT Group fjarlægt búnað Huawei úr farsímakerfum sínum í Bretlandi. 30. janúar 2019 12:15
Versnandi samband Kanada og Kína Yfirvöld í Kína hafa ákært Kanadamennina Michael Kovrig, fyrrverandi erindreka, og Michael Spavor athafnamann fyrir njósnir. 5. mars 2019 08:00