Svolítið hryggur yfir niðurstöðunni Jóhann K. Jóhannsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 1. ágúst 2019 22:38 Í síðustu viku lagði ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara til við Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra, að opna tollkvóta á lambahryggjum, það er að tollur á innfluttu kjöti yrði lækkaður tímabundið - til að bregðast við skorti á hryggjum í verslunum og þannig kæmi það neytendum til góða.
Tollur á innflutta lambahryggi verður ekki lækkaður eins og ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara lagði til við landbúnaðarráðherra í síðustu viku í því skyni að bregðast við skorti á markaði. Ráðherra segir að afurðarstöðvar hafi farið fram úr sér með útflutningi á liðnum vetri og vill einfalda regluverkið. Aðspurður segist Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, svolítið hryggur vegna niðurstöðunnar en hann vonar að menn læri af henni. „Þessi niðurstaða hún þýðir ekkert að það hafi aukist birgðir af lambakjöti í landinu. Það er áfram vöntun á lambakjöti í búðunum og hefur verið vikum og mánuðum saman og verðið hefur hækkað. Það væri ekkert vandamál ef þetta væri einhver annar bransi en íslenskur landbúnaður.“Neytendur hafa kvartað undan háu verði á lambakjöti og á sama tíma eru sauðfjárbændur að kvarta undan lágu verði fyrir hvern skrokk. Er þetta til marks um það að milliliðirnir eru að fá of stóran bita af kökunni?„Ég held einfaldlega að markaðslögmálin hafi ekki fengið að gilda um þessa búgrein, ekki frekar en margar aðrar. Það myndi örugglega vera bæði bændum og neytendum til hagsbóta að skera upp þetta kerfi og auka markaðsfrelsi í því,“ svarar Ólafur.Hvað sem skorti líður þá er slátrun við það að hefjast og menn ætla að fara fyrr af stað og hafa tilkynnt það í dag. Hefði ekki verið hægt að taka þetta samtal fyrr svona þegar í ljós kom í hvað stefndi?„Samtalið hefur verið tekið alveg frá því í vor. Það liggur fyrir að það var fluttur út of stór hluti framleiðslu síðasta árs sem bjó til skort. Það var ekki hægt að flytja inn til að auka framboðið vegna hárra tolla en síðan eru það afurðarstöðvarnar sem með samstilltum aðgerðum, núna síðustu daga, hafa komið í veg fyrir að ákvæði búvörulaganna, um útgáfu skortkvóta, virkist og ég myndi nú halda að samkeppnisyfirvöld hafi eitthvað við þær samstilltu aðgerðir að athuga sem augljóslega miða af því að draga úr framboði og hækka verð á vörum.“Nú eru loftslagsmálin í algleymingi. Er ekki tímaskekkja að vera að berjast fyrir auknum innflutningi á lambakjöti með því kolefnisspori sem innflutningnum fylgir?„Það má líka snúa þessari spurningu við og spyrja hvort það sé þá ekki tímaskekkja að vera að flytja út lambakjöt eða bara allan fiskinn okkar.“Ólafur segir að of mikill útflutningur á framleiðslu síðasta árs hafi búið til skort.Skilyrði fyrir opnun tollkvóta ekki uppfyllt Rannsókn ráðgjafanefndar leiddi í ljós að skilyrði búvörulaga um opnun tollkvóta á erlendu lambakjöti hafi ekki verið uppfyllt. Í síðustu viku lagði ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara til við Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra, að opna tollkvóta á lambahryggjum, það er að tollur á innfluttu kjöti yrði lækkaður tímabundið - til að bregðast við skorti á hryggjum í verslunum og þannig kæmi það neytendum til góða. Í kjölfar þess að kaupum Kaupfélags Skagfirðinga á tveimur tonnum af lambahryggjum frá Fjallalambi óskaði ráðherra eftir því að nefndin myndi endurmeta hvort þörf væri á því að opna tollkvóta á lambahryggjum tímabundið en samkvæmt búvörulögum þarf að liggja fyrir skortur hjá að minnsta kosti tveimur aðskildum framleiðendum svo heimila megi innflutning. Vegna fregna af yfirvofandi skorti á lambahryggjum hefur sláturhús Kaupfélags Vestur-Húnvetninga brugðist við og ætlar að hefja slátrun í næstu viku en hún átti að hefjast um miðjan mánuðinn. Ráðgjafanefndin kom aftur saman í dag og hefur snúið við tillögu sinni um að opna á lækkun tollkvóta. Rannsókn nefndarinnar í gær og í fyrradag hafi leitt í ljós að skilyrði 65. gr. a búvörulaga eru ekki uppfyllt.Ráðherra segir að hafa megi ýmis orð um það hvort skortur sé á lambakjöti hér á landi.Segir afurðarstöðvarnar hafa farið fram úr sér Ráðherra segir að hafa megi ýmis orð um það hvort skortur sé á lambakjöti hér á landi. „Það er alveg augljóst í mínu huga að afurðastöðvarnar fóru töluvert fram úr sér með þessum útflutningi til útlanda á liðnum vetri. Það var umtalsvert mikið magn. Þeir komu sjálfir fyrir atvinnuveganefnd þingsins í febrúar og töluðu þá um skort, að hann væri yfirvofandi og síðan eru þeir að vinna með sín mál núna eftir þessa fyrri athugun nefndarinnar og allt gefur þetta tilefni til ákveðinnar gagnrýni og í mínum huga gefur þetta fullkomlega tilefni til þess að þetta regluverk verði allt endurskoðað og reynt að einfalda það til muna,“ sagði Kristján Þór Júlíusson.
Landbúnaður Tengdar fréttir Undanþága vegna innflutnings á lambakjöti veitt Íslenskir lambahryggir hafa verið af skornum skammti í sumar en ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara samþykkti í dag að opna tollkvóta á lambahryggjum. Fyrr í sumar hafði ósk um undanþágu frá tollum á innflutt kjöt verið hafnað.f 23. júlí 2019 16:11 Stjórnvöld bregðist of seint við skorti á lambahryggjum Formaður Félags atvinnurekenda segir stjórnvöld bregðast of seint við skorti á lambahryggjum með því að leyfa innflutning á erlendu kjöti. 25. júlí 2019 12:30 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Sjá meira
Undanþága vegna innflutnings á lambakjöti veitt Íslenskir lambahryggir hafa verið af skornum skammti í sumar en ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara samþykkti í dag að opna tollkvóta á lambahryggjum. Fyrr í sumar hafði ósk um undanþágu frá tollum á innflutt kjöt verið hafnað.f 23. júlí 2019 16:11
Stjórnvöld bregðist of seint við skorti á lambahryggjum Formaður Félags atvinnurekenda segir stjórnvöld bregðast of seint við skorti á lambahryggjum með því að leyfa innflutning á erlendu kjöti. 25. júlí 2019 12:30