Fyndnasti háskólaneminn til LOGOS Sylvía Hall skrifar 29. ágúst 2019 09:12 Nýjustu fulltrúar LOGOS; Tómas Aron, Kristín Edda, Hrafnkell og Erna. Aðsend
LOGOS lögmannsþjónusta hefur bætt við sig fjórum löglærðum fulltrúum. Fulltrúarnir eru ráðnir til að sinna lögfræðilegum verkefnum hjá stofunni. LOGOS er með starfsstöðvar í Reykjavík og London og er í forystu við að veita íslenskum og erlendum fyrirtækjum lögfræðiráðgjöf. LOGOS er jafnframt sú lögmannsstofa á Íslandi sem á sér lengsta sögu. Þeir fulltrúar sem hafa verið ráðnir til starfa eru þau Erna Leifsdóttir, Hrafnkell Ásgeirsson, Kristín Edda Frímannsdóttir og Tómas Aron Viggósson. Þau þrjú síðastnefndu hafa öll starfað sem laganemar hjá lögmannsþjónustunni frá árinu 2017. Erna Leifsdóttir hóf störf hjá LOGOS í júní 2019. Erna útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík sumarið 2019. Hún starfaði áður við lögfræðiráðgjöf hjá Eignarekstri. Unnusti Ernu er Theodór Halldórsson flugmaður. Hrafnkell Ásgeirsson hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Hann útskrifaðist með MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands sumarið 2019. Hrafnkell starfaði áður hjá VÍS. Unnusta Hrafnkels er Vala Rún Magnúsdóttir nemi í verkfræði. Athygli vekur að Hrafnkell var valinn fyndnasti háskólaneminn árið 2017. Kristín Edda Frímannsdóttir hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Hún útskrifaðist með MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands sumarið 2019. Áður starfaði Kristín Edda hjá Morgunblaðinu og Lagastofnun Háskóla Íslands. Unnusti Kristínar Eddu er Arnaldur Bragi Jakobsson arkitekt. Tómas Aron Viggósson hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Tómas útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Hann starfaði áður hjá Tryggingamiðstöðinni. Unnusta Tómasar er Unnur Véný Kristinsdóttir verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.
Vistaskipti Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira