Frábær leikur Sigvalda Guðjónssonar gat ekki komið í veg fyrir tap Elverum fyrir Celje Pivovarna Lasko í Meistaradeild Evrópu í handbolta.
Sigvaldi skoraði 10 mörk í 10 skotum og var markahæstur í liði Elverum sem tapaði 32-25.
Elverum hafði verið einu marki yfir í hálfleik, 14-15.
Elverum hefur enn ekki unnið leik í A riðli Meistaradeildarinnar.
