Eftir fimm töp í röð vann Bournemouth góðan sigur á Chelsea, 0-1, á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þetta var fjórða tap Chelsea í síðustu fimm leikjum. Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.
Dan Gosling skoraði eina mark leiksins þegar sex mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti leikur hans í byrjunarliði á tímabilinu.
Markið var upphaflega dæmt af en dómnum var snúið við eftir inngrip myndbandsdómara.
Eftir sigurinn er Bournemouth í 14. sæti deildarinnar með 19 stig.
