Liverpool vann þægilegan 2-0 sigur á botnbaráttuliði Aston Villa á Anfield í dag. Liðið getur enn bætt stigamet Manchester City.
Staðan var markalaus í afar rólegum fyrri hálfleik en Englandsmeistararnir voru töluvert meira með boltann.
Það var á 71. mínútu sem Sadio Mane braut ísinn fyrir Liverpool og kom þeim í 1-0 eftir sendingu frá Naby Keita. Á 89. mínútu skoraði táningurinn Curtis Jones síðan sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni og kom Liverpool í 2-0 en hann kom inn á sem varamaður. Mörkin reyndust ekki fleiri og Liverpool aftur komið á sigurbraut eftir stórt tap í síðustu umferð.
Sigurinn breytir auðvitað ekki neinu fyrir stöðu Liverpool í deildinni fyrir utan það að þeir eiga enn möguleika á að bæta stigamet Manchester City sem er 100 stig. Liverpool getur enn fengið 104 stig vinni þeir alla leiki sína.
Aston Villa er hinsvegar í slæmum málum í 18. sæti, fallsæti, og hafa ekki unnið leik í deildinni síðan í janúarmánuði.