Loðnan langt undir mörkum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. febrúar 2020 13:45 Frá Norðfjarðarhöfn í janúar.. Nær er Polar Amaroq GR og fjær Hákon EA, sem tóku bæði þátt í loðnuleit Mynd/Smári Geirsson.
Stærð hrygningarstofns loðnu samkvæmt mælingum í janúar var um 64 þúsund tonn. Er það langt undir þeim mörkum í gildandi aflareglu sem þarf að ná svo Hafrannsóknastofnun geti ráðlagt veiðar.Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar en þar segir að matið sé bráðabirgðamat byggt á mælingum þriggja skipa, RS Árna Friðrikssonar, ásamt loðnuskipunum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq. „Þrátt fyrir erfiðar veðuraðstæður náðist með samstilltu átaki þriggja mæliskipa og tveggja leitarskipa, heildaryfirferð frá Hvalbakshalla fyrir suðaustan land og þaðan norður um og suður fyrir Víkurál út af Vestfjörðum. Hafís hindraði mjög yfirferð í Grænlandssundi,“ segir á vef Hafrannsóknunarstofnunar. Meðfylgjandi mynd sýnir yfirferð skipanna og dreifingu loðnu yfir tímabilið 13. - 25. janúar.Mynd/Hafrannsóknarstofnun. Mælingar á stofninum hófust aftur á laugardaginn. Polar Amaroq byrjaði þá yfirferð suðaustur af landinu og mun Aðalsteinn Jónsson SU-011 koma inn í þær mælingar fyrir austan á morgun. RS Árni Friðriksson mun halda til mælinga í dag vestur fyrir land og mæla til móts við hin skipin. Gert er ráð fyrir að þessar mælingar geti staðið yfir fram í að minnsta kosti miðjan mánuðinn.Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þau samfélög sem mest treysta á loðnuveiðar, enda er áætlað að loðnuvertíð geti skilað fimmtán til tuttugu milljarða króna útflutningsverðmæti. Þetta eru tekjur sem einkum lenda í þeim byggðum sem vinna loðnuna; með heilfrystingu, hrognavinnslu og loðnubræðslu. Hafrannsóknarstofnun ráðlagði engar loðnuveiðar á síðasta ári sem var mikið högg fyrir mörg sjávarútvegsfyrirtæki.
Sjávarútvegur Tengdar fréttir Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti. 21. janúar 2020 13:07 Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39 Lítil von um loðnuveiði Leiðangursstjóri hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem kemur í höfn í Reykjavík nú í hádeginu segir að fyrstu mælingar á loðnu bendi til þess að í ár sé aftur loðnubrestur á Íslandsmiðum. 25. janúar 2020 12:15 Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15 Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum, norður af Hornströndum og Húnaflóa. "Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ segir leiðangursstjórinn. 22. janúar 2020 16:18 Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira
Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti. 21. janúar 2020 13:07
Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39
Lítil von um loðnuveiði Leiðangursstjóri hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem kemur í höfn í Reykjavík nú í hádeginu segir að fyrstu mælingar á loðnu bendi til þess að í ár sé aftur loðnubrestur á Íslandsmiðum. 25. janúar 2020 12:15
Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15
Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum, norður af Hornströndum og Húnaflóa. "Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ segir leiðangursstjórinn. 22. janúar 2020 16:18