Fimm ráð til foreldra á tímum heimsfaraldurs Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 20. mars 2020 12:00 Við lifum nú einstaka tíma og foreldrar standa frammi fyrir krefjandi verkefnum. Áður en lengra er haldiðer best að leyfa öxlum að síga, slaka á kjálkum og anda rólega. Við gerum okkar besta og meira er ekki hægt, en saman komumst við í gegnum þetta ástand sem nú hefur skapast. Við erum öll saman í óvæntum aðstæðum og um leið og foreldrar þurfa að sýna sjálfum sér vinsemd þá þarf líka þolinmæði gagnvart skólakerfinu sem var ekki heldur undir þetta búið og unnið er dag og nótt við að ráða fram úr málum. Þó svo ákveðið hafi verið að reyna að halda skólastarfi eins virku og hægt er á tímum kórónaveirunnar þarf engu að síður að nýta fjarkennslu í miklum mæli. Hafa ber í huga að ábyrgðin á kennslunni er skólans en foreldrar geta þó hjálpað til á ýmsa vegu og lagt sitt af mörkum.Í samstarfinu um nemandann bera allir ábyrgð, skólar og heimili, en mikilvægt er að fylgja leiðsögn skólans. Meginhlutverk foreldra í þessu samhengi er að hjálpa barninu að fylgja leiðbeiningum kennara og skóla. Fjarkennsla skólanna er með fjölbreyttum hætti út frá aðstæðum á hverjum stað og því er nú brýnt að sýna þolinmæði og hinkra eftir leiðbeiningum frá skóla og yfirvöldum. Eldri nemendur geta oftað miklu leyti séð um að halda sambandi við kennara og skóla upp á eigin spýtur, t.a.m. í gegnum forrit eins og Google Classroom o.fl. en þeir yngri þurfa meiri stuðning. Mikilvægt er þó fyrir foreldra barna á öllum aldri að fylgjast vel með og skapa eins góðan ramma í kringum barnið og hægt er. 1. Sköpum ró og ramma - Höldum fjölskyldufund og ræðum breytta tíma. - Höfum reglu á svefntíma og vöknum saman á morgnana og undirbúum okkur fyrir daginn eins og vant er, t.d. með því að snæða morgunmat, klæða okkur og finna til það sem þarf fyrir verkefni dagsins. - Útskýrum vel fyrir börnum og unglingum hvað kórónaveiran er og hvað felst í samkomubanni (sjá www.covid.is)og einnig einfaldað efni m.a. frá Rauða krossinum og Embætti landlæknis). Reynum að svara öllum þeirra spurningum eins og hægt er. - Setjumst niður og ræðum breytt kennslufyrirkomulag og útskýrum að nú fari stór hluti námsins fram heima fyrir og því þurfi að skapa góðan ramma til að halda skipulagi og dragast ekki aftur úr. - Fáum hugmyndir frá börnunum um hvernig væri sniðugt að haga þessu skipulagi og setjum upp stundaskrá. Ef þau upplifa sig sem þátttakendur getur verið auðveldara að fá þau með í skipulagið. - Aðstoðum barnið með heimanámið og skipulag skóladagsins. - Tölum jákvætt um námið heima fyrir. - Sjálfsagt er að nýta tæknina bæði til náms og afþreyingar en mikilvægt er að skapa ramma í kringum skjánotkun líkt og annað. Jafnvægi er lykilatriði líkt og áður. 2. Höfum raunhæfar væntingar - Mikilvægt er að skapa jafnvægi í væntingum til kennara, barna og foreldra þannig að dagarnir gangi upp. - Heimanámið getur verið góð leið til að skapa ramma og innihald í degi barnsins en mikilvægt er að átta sig á að foreldrar eru líka margir að vinna að heiman. Gerum því raunhæfar kröfur til barna og fullorðinna og ekki skapa deilur í kringum heimanámið. Verum frekar skapandi í okkar nálgun og finnum leiðir sem henta í hverju tilviki fyrir sig. - Misjafnt er hvernig foreldrar skipuleggja sig og tíma fjölskyldunnar. Ekki vera sífellt að bera þig saman við aðra, t.d. á samfélagsmiðlum, þótt sjálfsagt sé að nýta góðar hugmyndir. Við reynum öll að gera okkar besta eftir efnum og aðstæðum og það er engin ein leið rétt í þessu. Ekki reyna að vera fullkomin, verum frekar með skynsamlegar væntingar til okkar og annarra. Gerið það sem virkar fyrir ykkur og treystið því að kennararnir séu boðnir og búnir til að aðstoða nemendur þegar skólarnir opna að nýju. Börn hafa ólíkar þarfir nú sem fyrr og mikilvægt er að hafa það í huga við skipulag. 3. Munið að skólinn ber ábyrgð á kennslunni en foreldrar skapa ramma - Ef börnin þín eru í sóttkví fer kennslan vissulega fram þar sem þau eru stödd. Þegar kennsla er skert vegna samkomubanns eða barnið er sent heim þá koma fjarkennsla og heimakennsla í stað hefðbundinnar kennslu. - Skólarnir bera enn fræðsluskylduna þótt vissulega sé rétt að allir geri sitt besta í að vinna saman barninu til hagsbóta. Samstarfið um nemandann er enn í gildi og nú sem aldrei fyrr! Kennarar eru menntaðir til að kenna og eru þ.a.l. mjög færir á því sviði. Foreldrar koma ekki í stað þeirra en geta hjálpað til. - Foreldrar geta helst hjálpað með því að aðstoða börnin við að fara eftir leiðbeiningum kennara og tengjast fjarkennslubúnaði ef við á. Ef fjarkennslan virkar ekki sem skyldi er mikilvægt að láta skólann vita og reyna þá að finna aðrar lausnir þannig að nemendur geti notið aðstoðar kennara ef þeir eru strand í tilteknum verkefnum. - Fylgið leiðbeiningum skóla og skipuleggið daginn út frá því. Ef þig vantar frekari leiðbeiningar með námið eða útskýringar hafðu þá samband við kennara og/eða skóla barnsins, t.d. með tölvupósti. - Finna má fjölbreytt námsefni á Fræðslugátt Menntamálastofnunar en þar eru námsgögn aðgengileg á rafrænu formi á vefsíðunni http://fraedslugatt.is. Einnig eru í burðarliðnum spennandi verkefni hjá RÚV og Menntavísindasviði Háskóla Íslands sem við heyrum meira af á næstu dögum. Einnig er vert að benda á vef Menntastefnu Reykjavíkur þar sem finna má verkfærakistu: https://menntastefna.is/verkfaerakista. Að lokum bjóða ýmsir aðilar upp á áhugaverða og fróðlega afþreyingu og fræðslu fyrir börn í gegnum netið og má þar t.d. nefna Ævar vísindamann sem deilir nú daglegum upplestri úr bókinni Risaeðlur í Reykjavík og Siggu Dögg, kynfræðing, sem deilir kynfræðslu í beinni útsendingu á meðan á samkomubanni stendur. Nánari upplýsingar er að finna á fésbókarsíðum þeirra. 4. Gerum hlé á vinnu og námi - Nú vinna margir að heiman og börn eru ýmist heima eða stutt í skólanum á degi hverjum. Munum eftir að gera hlé og hreyfa skrokkinn. Gott er að bregða sér út fyrir og hreyfa sig ef það er möguleiki, þó ekki væri nema rétt út í garð eða á bílastæðið. Víða eru svo góð útivistarsvæði þar sem halda má góðri fjarlægð við næsta mann.Einnig er hægt að gera æfingar innandyra og er margt í boði á netinu í þeim efnum. - Snæðum saman og grípum jafnvel tækifærið og eldum eitthvað eða bökum saman. - Gætum þess að setja líka mörk með vinnu á heimilinu og ákveða til dæmis að kvöldin séu laus við vinnu, ef hægt er. Vinnutíminn áekki að teygja sig yfir öll mörk og bitna á fjölskyldulífinu nema uppi séu afar sérstakar aðstæður. Velferð barna á að vera í fyrirrúmi. Við þurfum einnig að huga að okkar heilsu til að vera í stakk búin að vera góðir foreldrar. - Tökum lífinu með ró og ræðum hvernig gekk í dag. Sýnum bæði börnunum okkar og okkur sjálfum vinsemd. 5. Verum í sambandi - Á næstu vikum verða nemendur mikið einir og því gæti verið sniðugt að vinna verkefni saman í minni hópum á netinu. Kennarar geta þá skapað rafræna umgjörð um slíkt hópastarf, t.d. í Google docs. Ýmsar leiðir eru í boði. - Hægt er að halda sambandi og eiga félagslíf með því að spjalla í síma eða á netinu. - Styðjum hvort annað og ef einhverjir nýta tæknina lítið, t.d. einhverjir foreldrar í bekknum, má alltaf taka upp símtólið og heyra í þeim. Kannski getum við hjálpað. - Hugum að börnum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu og að þau hafi tengingu út í samfélagið. Ef við höfum áhyggjur er hægt að hafa samband við hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjallið á raudikrossinn.is. Ef um neyðartilfelli er að ræða ber að hringja í 112. - Ef börn og aðrir gestir koma í heimsókn er mikilvægt að halda ákveðinni fjarlægð og huga að hreinlætisaðgerðum. Gott er að venja sig á að þvo hendur með sápu og spritta um leið og komið er inn. - Munum að þvo hendurmeð sápu og spritta, hósta í olnbogabót og halda vissri fjarlægð. Annars er gott að reyna að láta lífið bara hafa sinn vanagang og hugsa í lausnum. Saman komumst við í gegnum þetta. Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. Pistillinn birtist fyrst á vefsíðu Heimilis og skóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrefna Sigurjónsdóttir Börn og uppeldi Skóla - og menntamál Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun