Bíó og sjónvarp

Bein út­­sending: Kvik­mynda­fram­leiðsla rædd á Bransa­­dögum RIFF

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Baltasar Kormákur á opnunarkvöldi RIFF í ár. Hann heldur erindi frá 16.05 til 16.25. 
Baltasar Kormákur á opnunarkvöldi RIFF í ár. Hann heldur erindi frá 16.05 til 16.25.  Vísir/Elín Guðmunds

Yfir hundrað fagaðilar, blaðamenn og kvikmyndagerðarmenn koma að utan og taka þátt í Bransadögum RIFF í ár en þeir hefjast í dag í Norræna húsinu og standa til 9. október.

Önnur málstofa Bransadaga er tileinkuð framleiðslu kvikmynda og byrjar í dag klukkan 14:00 og er í beinni útsendingu hér á Vísi.

Sumir viðburðir Bransadaga eru lokaðir en aðrir opnir almenningi en fjöldatakmarkanna er þó skráning alltaf nauðsynleg. Framleiðendadagurinn í dag var aðeins opinn fagfólki. 

Framleiðendadagur

Vettvangur fyrir tengslamyndun hjá framleiðendum frá Íslandi, Evrópu og Norður- Ameríku. Aðeins fyrir fagfólk.

Fulltrúar Hollands: Floor Onrust (Family Affair Films), Gijs Kerbosch (Halal), Erik Glijnis (Lemming Film), Frank Hoeve (Baldr) Dirk Rijneke (Rotterdam Films), Mildred Van Leeuwaarden (Rotterdam Films), Maaike Neve (Bind), Ilse Ronteltap (SEE NL/ Netherlands Film Fund), Ido Abram (SEE NL / Eye Filmmuseum), Marit van den Elshout (IFFR/CineMart), Nathalie Mierop (SEE NL / Eye Filmmuseum).

Fulltrúar Íslands: Anton Máni Svansson (Join Motion Pictures), Baltasar Kormákur (RVK Studios), Bryndís Jónatansdóttir (Record Iceland), Hilmar Sigurðsson (Sagafilm), Hörður Rúnarsson (Glassriver), Ragnheiður Erlendsdóttir (Zik Zak), Sigurjón Sighvatsson (Palomar Pictures).

Alþjóðlegir og norrænir fulltrúar: Guillaume Calop (Les Arcs Film Festival), Marie Zeniter (Magnolia Pictures), Mark Lwoff (Bufo Films), Jón Hammer (Kykmyndir Pictures), Pipaluk Kreutzmann Jørgensen (Polarama), Aka Hansen (Ului).


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.