„Það gerast slys á kvikmyndasettum öðru hvoru en ekkert þessu líkt. Þetta er atvik sem gerist í einni af hverjum billjón (e. trillion) tökum,“ sagði Alec Baldwin við fjölmiðla dag.
Að sögn The Guardian ræddi leikarinn við fjölmiðlamenn í dag í því skyni að fá þá til að láta sig og fjölskyldu sína í friði. Eiginkona hans Hilaria hafi reynt að stöðva mann sinn.
„Kona lést. Hún var vinkona mín, þegar ég kom til Santa Fe til að hefja tökur bauð ég henni út að borða,“ segir hann.
Þá segir Baldwin að hann hafi verið í stöðugum samskiptum við ekkil Halynu og að hann hefði miklar áhyggjur af fjölskyldu hennar.
Hafi verið vel smurð vél
„Við vorum mjög vel smurt kvikmyndatökulið að skjóta mynd saman þegar þessi hræðilegi atburður átti sér stað,“ segir Baldwin þrátt fyrir að rannsakendur hafi sagt að víða hafi pottur verið brotinn í framleiðslu myndarinnar. Ekki hefur verið útilokað að dómsmál verði höfðuð vegna dauða Halynu Hutchins.
Baldwin var sagt að byssan væri „köld“
Alec Baldwin var meðal rithöfunda kvikmyndarinnar Rust og kom einnig að framleiðslu kvikmyndarinnar. Hún fjallar um það hvernig gamall útlagi reynir að koma barnabarni sínu til bjargar eftir að til stendur að hengja hann fyrir að bana manni af slysni.
Við æfingar atriðis í myndinni hljóp skot úr skammbyssu sem leikarinn Alec Baldwin var að æfa sig að draga úr slíðri. Lögreglan segir kúlu úr byssunni hafa hæft Hutchins, sem var kvikmyndatökustjóri Rust, farið í gegnum hana og í öxl Joel Souza, leikstjóra. Hutchins lést á sjúkrahúsi.
Dave Halls, aðstoðarleikstjóri myndarinnar, hefur viðurkennt að hafa ekki skoðað skotin í byssunni nægilega vel áður en hann rétti Baldwin byssuna og lýsti því yfir að hún væri örugg. Áður hafði Hannah Gutierrez-Reed, vopnavörður framleiðslunnar, meðhöndlað byssuna og átti hún sömuleiðis að tryggja að byssan væri örugg.