Aðdróttanir og dylgjur — auglýst eftir kjaftasögum Eva Hauksdóttir skrifar 5. febrúar 2022 08:30 Ærumeiðandi aðdróttanir, í skilningi laga, fela í sér staðhæfingar eða dylgjur um lögbrot eða siðferðislega ámælisverða hegðun. Fyrir þá sem í hefndarskyni eða af illgirni vilja leggja mannorð annarra í rúst, án þess að fara með málið í gegnum réttarkerfið, eru dylgjur sérlega hentug aðferð. Þeir sem dylgjurnar beinast gegn eiga venjulega erfitt með að bera af sér sakir. Ýmist getur gerandinn neitað því að ávirðingunum sé beint gegn þeim sem tekur þær til sín eða neitað því að þær feli í sér ásökun um þá háttsemi sem lesandinn skilur þó að verið er að ýja að. Dylgjur setja gerandann þannig í mun minni hættu á lögsókn en fullyrðingar. Fyrir nokkrum árum skrifaði ég pistil þar sem ég gaf tvenns konar mismunandi „ófrægingartips", byggð á þeim aðferðum sem urðu áberandi í #beauty_tips herferðinni (sem var eitt afsprengi #metoo hreyfingarinnar). Í þeim pistli nefndi ég ekki þann möguleika að auglýsa eftir kjaftasögum. Sú aðferð er skilvirk og áhrifarík, ekki síst vegna þess að latir blaðamenn geta auðveldlega fjöldaframleitt smellvænlegar fréttir sem þeir þurfa ekki að taka neina ábyrgð á, bara með því að endurbirta dylgjurnar með nafni höfundar. Það framlag Eddu Falak til meintrar réttindabaráttu kvenna að auglýsa eftir sögum af kynferðisbrotum er reyndar ekki alveg nýtt af nálinni. Þessu heillaráði var t.d. beitt í #metoo hópi sviðslistakvenna árið 2017. Stjórnandi hópsins gaf vísbendingar um það hvaða mann stæði til að taka niður næst og bauðst til að koma á samtali milli þeirra kvenna sem hefðu eitthvað upp á viðkomandi að klaga. Þeim tilmælum var þó beint til mögulegra þolenda. Ég minnist þess ekki að hafa áður séð auglýst eftir bara einhverjum upplýsingum frá bara hverjum sem er, í þessum tilgangi. Edda toppar svo listina með því að slá úr og í. Fyrst staðfestir hún að auglýsingin beinist ekki gegn Kára Stefánssyni en segir næsta dag að sú yfirlýsing sé marklaus. Í framhaldinu sýnir hún svo fulllkomið skilningsleysi á aðstöðu saklausra sem grunur beinist að. Fólk sem skilur ekki að uppátæki þess geta haft óverðskuldaðar afleiðingar ætti kannski að finna sér eitthvað þarfara að dunda við en að hanna nýtt réttarkerfi. Nú er engin þörf á að kenna Eddu Falak trix til að koma aðdróttunum á framfæri án þess að þurfa að bera ábyrgð á því, þar er hún öllum hnútum kunnug. En fyrir verr sjóaða netníðinga sem vilja nýta sér hundslega þjónkun löggjafa og dómstóla við mannorðsmorð undir merkjum #metoo hreyfingarinnar og álíka herferða, endurbirti ég hér með hluta úr pistli sem ég skrifaði fyrir Kvennablaðið sumarið 2015, undir fyrirsögninni Ófrægingartips. Nefndu nöfn og lýstu atburði en ekki kalla það glæp Segðu frá óþægilegri reynslu, óvönduðum vinnubrögðum eða lélegri framkomu, sem er þó ekki kynferðisbrot. Segðu t.d. frá því að kvensjúkdómalæknir hafi farið með andlitið óþægilega nálægt dýrðinni á þér. Þegar þú segir frá slíkri upplifun í hópi mörg hundruð kvenna sem eru brotnar vegna kynferðisofbeldis eða kynferðislegs yfirgangs, og tuttugu og eitthvað þúsund annarra sem liggja á hleri, eðlilega gagnteknar af viðbjóði, leggja þúsundir þeirra þá merkingu í atburðinn að þarna hafi kynferðisbrot átt sér stað. Maðurinn hafi ekki aðeins verið ófaglegur, heldur hafi hann misnotað aðstöðu sína í kynferðislegum tilgangi. Orðin dónakall og kynferðisafbrot öðlast nýja merkingu. Þessa aðferð má útfæra á ýmsa vegu. Nafngreindu þekktan mann og lýstu því hvernig hann klóraði sér í pungnum í strætó. Nafngreindu mann sem fer í sundlaugina á sama tíma og þú og segðu að þú hafir margsinnis séð hann fara í heita pottinn um leið og nokkrar 12 ára stelpur. Þú ert ekki að lýsa neinu ólöglegu og þar með ekki að bera neitt á hann sem í lögum er skilgreint sem kynferðisglæpur. Þar með er ekki hægt að lögsækja þig fyrir ærumeiðingar en fólk mun túlka atvikið sem þú lýsir sem kynferðislega áreitni. Maðurinn stimplaður og þú stikkfrí. Snilld. Láttu áheyrendum eftir að draga ályktanir Vísbendingaaðferðin er einnig snjallræði til að koma upp um þrjótinn án þess að eiga málsókn á hættu. T.d. má droppa upplýsingum um atvinnu, búsetu eða aðrar aðstæður nauðgarans og láta áheyrandanum eftir að draga ályktanir. Tónlistarmaður sem fyrir nokkrum árum flutti jólalag, er hæfilega ljóst til að beina grun að þröngum hópi manna en þú ert samt ekki að birta persónuupplýsingar. Á sama hátt má koma upp um nauðgara með því að segja að hann sé sjómaður sem gerir út frá Grundarfirði, afreksmaður í íþróttum eða áberandi vegna starfa innan kristilegra samtaka. Í þessum tilvikum ertu að lýsa glæp, en þar sem þú ásakar engan sérstakan er ekki hægt að flokka orð þín sem ærumeiðingar. Þeir sem draga rétta ályktun vita hvern þú átt við. Eini gallinn er sá að sumir draga rangar ályktanir og allir sem lýsingin gæti átt við standa álíka berskjaldaðir og áverkalaust nauðgunarfórnarlamb. Ábyrgðin er þó ekki þess sem talar, heldur þess sem túlkar. Glæsilegt. Þetta eru tvær pottþéttar aðferðir og ef einhver gúterar þær ekki, þá er viðkomandi að beita þig #þöggun, tala óvarlega um viðkvæm mál, sýna samúð með gerandanum og gera lítið úr glæpnum og úr þér sem manneskju og konu. Komdu þá með lausn! Ástæðan fyrir því að við höfum réttarkerfi er sú að það er skárra en að hver og einn hafi sín eigin lög og felli sjálfur dóma. Það gefur augaleið að réttarkerfið ræður ekki við stóran hluta kynferðisbrota. Ég hef fengið athugasemdir eins og „hvað viltu þá gera?“ eða „komdu þá með lausn“ þegar ég held því fram að þrátt fyrir ófullkomleik réttarkerfisins sé lausnin ekki sú að taka menn af lífi á netinu eða að grasrótarhreyfingar og vinahópar stofni sína eigin dómstóla. Ég get því miður ekki bent þolendum kynferðisofbeldis á neina skárri leið en þá að leggja fram kæru. Úrræðaleysi mitt sannar þó ekki að þær aðferðir sem beitt er til að knýja fram réttlæti utan réttarkerfisins séu viðunanlegar. Ég kann heldur ekki að lækna geðveiki en veit samt að það gerir aðeins illt verra að særa út illa anda og taka sjúklingnum blóð. Hugsanlega gæti sáttameðferð gagnast í einhverjum kynferðisbrotamálum en uppgjörið þyrfti þá að vera í höndum fagfólks en ekki vina og vandamanna og því síður fjölmiðla. Það er a.m.k. ekki lausn að búa til fleiri vandamál sem réttarkerfið ræður ekki við. Nei, ég vil ekki skerða tjáningarfrelsið. Ég mæli ekki með því að þolendum kynferðisofbeldis verði bannað að droppa vísbendingum eða að þeim sem misbýður framkoma einhvers verði bannað að nafngreina hann. En þið sem farið þessar leiðir; gömul áföll og sterkar skoðanir gefa ykkur ekki tilkall til meiri tillitssemi en þið sýnið öðrum, svo reiknið með því að þessar aðferðir verði gagnrýndar. Höfundur er lögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein MeToo Eva Hauksdóttir Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun