Arion ræður nýjan regluvörð og nýja forstöðumenn Atli Ísleifsson skrifar 12. apríl 2022 12:44 Andrés Fjeldsted, Elísabet Árnadóttir og Hreiðar Már Hermannsson. Arion banki hefur ráðið Andrés Fjeldsted í starf regluvarðar, Elísabetu Árnadóttur í starf forstöðumanns lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og Hreiðar Má Hermannsson í starf forstoðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans.
Frá þessu segir í tilkynningu frá bankanum. „Andrés Fjeldsted er nýr regluvörður Arion banka og tekur hann við af Hákoni Má Péturssyni sem hefur gegnt starfi regluvarðar bankans frá árinu 2011. Andrés Fjeldsted hefur starfað við lögfræðiráðgjöf hjá Arion banka frá árinu 2015. Helstu verkefni hans hafa tengst eignastýringu bankans, yfirstjórn og nú síðast hefur hann verið ritari stjórnar bankans. Andrés er með mag. jur. gráðu frá Háskóla Íslands og með BA gráðu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá University of Essex. Elísabet Árnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Hún tekur við af Kristjáni Einarssyni sem sagði starfi sínu lausu hjá bankanum. Elísabet hóf störf hjá Arion banka árið 2000 og hefur sinnt þar ýmsum störfum, m.a. verið útibússtjóri, viðskiptastjóri fyrirtækja, fyrirtækjaráðgjafi og þjónusturáðgjafi. Elísabet er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með próf í verðbréfaviðskiptum. Hreiðar Már Hermannsson er nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Hann tekur við af Lýði Þór Þorgeirssyni sem hefur sagt starfi sínu lausu hjá bankanum. Hreiðar Már hóf störf hjá Arion banka árið 2019 og hefur starfað við sérhæfðar lánveitingar á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Á árunum 2016-2019 vann Hreiðar við fjárfestingar hjá VÍS. Þar áður starfaði hann við eignastýringu hjá Glitni og fyrirtækjaráðgjöf hjá Oury Clark í London. Hreiðar er viðskiptafræðingur frá London South Bank University og með MSc í fjármálum frá sama skóla,“ segir í tilkynningunni.
Íslenskir bankar Vistaskipti Mest lesið Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Sjá meira