Lyon er Evrópumeistari | Sjáðu mörkin og atvikin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. maí 2022 19:00 Lyon er Evrópumeistari í áttunda sinn. Catherine Ivill/Getty Images Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Lyon eru Evrópumeistarar kvenna í fótbolta eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Barcelona. Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Lyon. Barcelona var fyrir leik sigurstranglegri aðilinn enda ríkjandi Evrópumeistarar og þá vann liðið alla 30 leiki sína í spænsku deildinni. Barcelona hafði hins vegar tapað gegn Wolfsburg í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og segja má að sá leikur hafi lagt grunninn að leikplani Lyon í kvöld. Er liðin gengu inn á Allianz-völlinn í Tórínó var tæplega 40 stiga hiti og ljóst að það gæti haft áhrif þegar líða myndi á leikinn. Það kom á daginn enda voru tvær vatnspásur, ein í sitthvorum hálfleik. Strax á sjöttu mínútu leiksins varð hitinn á vellinum óbærilegur en Amandine Henry kom Lyon þá yfir með einu rosalegasta marki síðari ára. Hún fékk nægan tíma til að athafna sig fyrir utan teig Börsunga og lét á endanum vaða. Skotið var frábært og söng í skeytunum hægra megin, Sandra Paños kom engum vörnum við í marki Barcelona og staðan orðin 1-0 Lyon í vil. TAKE. A. BOW. Amandine Henry with one of the goals of the season for @OLFeminin Watch the @UWCL Final live https://t.co/JBKFKDjnnI https://t.co/mCHiZrlDBV https://t.co/tHncncobhD pic.twitter.com/eDXeDvlLBx— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 THIS ANGLE https://t.co/JBKFKDAYMi https://t.co/mCHiZr42Kn https://t.co/tHncnc6Aq5 pic.twitter.com/R53wosvv2w— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Ástralski hægri bakvörðurinn Ellie Carpenter meiddist skömmu síðar og þurfti Lyon því að gera sína fyrstu skiptingu. Kadeisha Buchanan kom inn í hennar stað. Það virðist sem hitinn í Torínó hafi haft meiri áhrif á Börsunga en þegar 23 mínútur voru komnar á klukkuna komst Lyon 2-0 yfir. Selma Bacha átti þá frábæra fyrirgjöf frá vinstri sem norska markadrottningin Ada Hegerberg skallaði af öllu afli í netið. The @UWCL's all-time top scorer, Ada Hegerberg, doubles @OLFeminin's lead! Watch the @UWCL Final live https://t.co/JBKFKDjnnI https://t.co/mCHiZrlDBV https://t.co/tHncncobhD pic.twitter.com/7F3NTTmB1R— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Barcelona þá komst Lyon í 3-0 tíu mínútum síðar þökk sé marki Catarina Macario. Hegerberg með stoðsendinguna eftir ævintýralegt vesen á varnarmönnum Börsunga. Staðan orðin 3-0 og Evrópumeistararnir komnir í ansi bratta brekku. LYON ARE RUNNING RIOT!Catarina Macario with the tap in! Watch the @UWCL Final live https://t.co/JBKFKDjnnI https://t.co/mCHiZrlDBV https://t.co/tHncncobhD pic.twitter.com/acug814Wkx— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Alexia Putellas – besta knattspyrnukona í heimi og fyrirliði Barcelona - minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks eftir frábæra sókn Börsunga. Caroline Graham Hansen með stoðsendinguna og Barcelona allt í einu komið með snæri til að reyna toga sig upp brekkuna. Staðan í hálfleik 3-1 Lyon í vil. ALEXIA PUTELLAS GIVES @FCBFEMENI HOPE! She is now the top scorer in the #UWCL this season. Watch the @UWCL Final live https://t.co/JBKFKDjnnI https://t.co/mCHiZrlDBV https://t.co/tHncncobhD pic.twitter.com/XATSkA4mLh— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Síðari hálfleikur var ekki alveg jafn skemmtilegur og sá fyrri. Börsungar bættu í sóknina hægt og rólega, fengu nokkur færi en tókst aldrei að brjóta sterkan varnarmúr Lyon á bak aftur. WHAT A GOAL THIS WOULD HAVE BEEN FOR @FCBfemeni Incredible vision from Patricia Guijarro! Watch the @UWCL Final live https://t.co/JBKFKDjnnI https://t.co/mCHiZrlDBV https://t.co/tHncncobhD pic.twitter.com/yM6xRJL8Y8— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Patricia Guijarro komst næst því þegar hún átti skot af löngu færi sem hafnaði í slánni. Þegar Börsungar nálguðust teiginn þá komust þær ekki í gegnumWendie Renard og stöllur í öftustu línu Lyon. Lokatölur 3-1 Lyon í vil og liðið því Evrópumeistari í áttunda sinn. THE CHAMPIONS OF EUROPE! @OLFeminin pic.twitter.com/iznM8klsJk— DAZN Football (@DAZNFootball) May 21, 2022 Sara Björk kom ekki við sögu í leiknum en hún sat allan tímann á varamannabekk Lyon. Hún mun yfirgefa liðið í sumar. Sara Björk hefur tvívegis spilað í úrslitum Meistaradeildarinnar, árið 2018 fékk hún silfur með Wolfsburg og árið 2020 varð hún Evrópumeistari þegar hún skoraði í 3-1 sigri Lyon á hennar gamla liði, Wolfsburg. Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Fótbolti Frakkland Íslendingar erlendis
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti