Frakkland

Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag
Búist er við því að Bretland viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag í kjölfar þess að Ísrael hefur ekki mætt þeim skilyrðum sem þeim voru sett í júlí um vopnahlé og frið á Gasa. Í frétt á vef BBC segir að búist sé við því að Keir Starmer, forsætisráðherra landsins, tilkynni um það síðar í dag.

80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag
Gert er ráð fyrir að um 800.000 manns muni taka þátt í mótmælum í Frakklandi í dag, þar sem um 250 mótmælagöngur hafa verið skipulagar út um allt land.

Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona
Emmanuel Macron Frakklandsforseti og eiginkona hans Brigitte Macron munu leggja fram myndir og vísindaleg sönnunargögn fyrir dómstól í Bandaríkjunum til að sanna að Brigitte sé líffræðilega kona.

Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi
Áhrifavaldarnir Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti Arnarsson, betur þekktur sem Lil Curly, eru nýkomin heim úr fríi í Frakkland þar sem þau nutu sólarinnar í ævintýralegu umhverfi. Lífið virðist leika við þau!

Skipar strax nýjan forsætisráðherra
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur strax skipað nýjan forsætisráðherra, einungis einum degi eftir að stjórnarmeirihlutinn á franska þinginu stóðst ekki vantrauststillögu. Nýi forsætisráðherrann er Sébastien Lecornu, varnarmálaráðherra í fráfarandi ríkisstjórn og bandamaður Macrons til langs tíma.

Þurfa að finna fimmta forsætisráðherrann á tveimur árum
François Bayrou, forsætisráðherra Frakklands, stóð ekki af sér vantrauststillögu á franska þinginu. Því er ríkisstjórn Frakklands fallin en hún var einungis starfandi í níu mánuði. Emmanuel Macron, forseti, þarf nú að reyna að finna fimmta forsætisráðherra landsins á tæpum tveimur árum.

Biðlaði til stjórnarandstöðunnar á pólitískum dánarbeði sínum
Francois Bayrou, forsætisráðherra Frakklands, reyndi að sannfæra stjórnarandstöðuna um nauðsyn þess að draga úr hallarekstri og skuldasöfnun ríkisins áður en þingið greiðir atkvæði um að setja hann af í dag. Aðgerðir Bayrou í þessum efnum eru ein helsta ástæða þess að stjórnarandstaðan býr sig undir að sparka honum úr embætti.

Segir 26 ríki vilja senda hermenn til Úkraínu
Leiðtogar 25 ríkja í Evrópu og Kanada hafa samþykkt að senda hermenn til Úkraínu og fleiri ríki hafi samþykkt að taka þátt í einhverskonar öryggistryggingu handa Úkraínumönnum, eftir að endir verður bundinn á innrás Rússa. Hvernig þær tryggingar myndu líta út liggur ekki fyrir og verður útlistað betur seinna meir en Bandaríkjamenn eru sagðir ætla að koma að því með stuðningu úr lofti og aðstoð við eftirlit.

Evrópuleiðtogar funda um öryggistryggingar fyrir Úkraínu
Um það bil 30 þjóðarleiðtogar taka nú þátt í ráðstefnu í París, um öryggistryggingar til handa Úkraínu. Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, stýra fundum en margir eru sagðir taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað.

Vilja gera Úkraínu að tormeltum „stálbroddgelti“
Úkraínumenn hyggja á umfangsmikla hernaðaruppbyggingu sem þeir vonast til að dugi til sem tryggja tilvist og sjálfstæði Úkraínu gegn Rússum í framtíðinni, og hjálpi þeim i að binda enda á núverandi innrás Rússa. Þetta gæti verið besta öryggistrygging Úkraínu, þar sem slíkar tryggingar frá Vesturlöndum virðast ekki ætla að raungerast.

Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands
Laurent Freixe, framkvæmdastjóri Nestlé, hefur verið látinn taka pokann sinn í kjölfar ástarsambands sem hann átti í við undirmann sinn.

Frakkar skila höfuðkúpu konungsins Toera
Stjórnvöld í Frakklandi hafa skilað hauskúpu konungsins Toera til Madagaskar. Toera var myrtur og afhöfðaður af frönskum hermönnum árið 1897.

Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Fjármálaráðherra Frakka sagði að mögulega þyrftu frönsk yfirvöld að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna yfirvofandi skuldakreppu. Hugmyndir forsætisráðherrans um niðurskurð hafa vakið óánægju almennings en hann sækist eftir traustyfirlýsingu þingsins.

Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast
Íslenska ríkið gerðist brotlegt við mannréttindasáttmála Evrópu, með því að lögregla hafi látið tilkynningu konu um heimilisofbeldi á hendur fyrrverandi kærasta sínum fyrnast. Maðurinn var ekki yfirheyrður fyrr en eftir að málin voru fyrnd. Önnur kona tapaði sambærilegu máli fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í morgun.

Örlög Bayrou ráðast 8. september
Útlit er fyrir að François Bayrou, forsætisráðherra Frakklands, muni ekki standa af sér vantrauststillögu sem þingmenn munu greiða atkvæði um þann 8. september næstkomandi.

„Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi
Eldri kona er látin og að minnsta kosti eins er saknað í gróðureldum sem nú geisa í suðurhluta Frakklands. Forsætisráðherrann François Bayrou heimsótti Aude í gær, þar sem eldarnir hafa brunnið á svæði sem er stærra en París.

Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum
Á hverju sumri fyllist strandbærinn Les Sables d‘Olonne á vesturströnd Frakklands af ferðamönnum, sem flestir eru franskir, en þeir þykja gjarnir, jafnvel of gjarnir, á það að ganga um bæinn á sundfötum sínum eða berir að ofan.

Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna
Stjórnvöld í Frakklandi segjast fylgjast náið með þróun mála varðandi birgðir af getnaðarvörnum sem eru sagðar á leið til landsins til brennslu.

Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas
Stefnubreyting Donalds Trump Bandaríkjaforseta hvað stríðið og hungursneyðina í Palestínu varðar virðist nú ekki jafnafgerandi. Í samtali við blaðamenn þegar hann kom heim til Washington eftir fund með leiðtogum Evrópusambandsins og Bretlands dró hann í land.

Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á
Íslendingur í Frönsku Pólýnesíu segist hafa fyllst skelfingu þegar fregnir bárust af jarðskjálfta undan ströndum Rússlands og gefnar voru út flóðbylgjuviðvaranir. Skjálftinn var 8,8 að stærð en betur fór en á horfðist. Engar fregnir hafa borist af manntjóni.

Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“
Forstjóri Play bindur vonir við að fyrirhuguð skuldabréfaútgáfa félagsins og breytingar í rekstri verði til þess að koma félaginu úr ólgusjó. Félagið stefnir enn að því að gera fjórar vélar út á Íslandi og fljúga suður á bóginn.

Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas
Evrópusambandið, Arababandalagið og sautján aðrar þjóðir hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem Ísrael er hvatt til að samþykkja tveggja ríkja lausnina og kallað er eftir því að Hamas leggi niður vopn sín og láti af stjórn Gasa. Utanríkisráðherra Íslands skrifaði jafnframt undir samstarfssamkomulag milli Íslands og Palestínu.

Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti tveggja ferðamanna á hótelinu Reykjavík Edition miðar ágætlega að sögn fulltrúa í rannsóknardeild.

„Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að ákvörðun Frakklands að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki skipti engu máli. Það skipti í sjálfu sér engu máli það sem Macron eða Frakkland segi um málið.

„Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“
Yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau segja tíma til kominn að ljúka stríðinu á Gasa.

Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar
Yfirvöld í Ísrael og Bandaríkjunum hafa fordæmt ákvörðun Emmanuels Macrons Frakklandsforseta um að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki.

Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki
Emmanuel Macron Frakklandsforseti greinir frá því í samfélagsmiðlafærslu að Frakkland viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki.

Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður
Emmanuel Macron Frakklandsforseti og eiginkona hans Brigitte hafa höfðað mál á hendur bandaríska þáttastjórnandanum og álitsgjafanum Candace Owens. Owens hefur haldið því fram að Brigitte sé í raun karlmaður og forsetinn á mála hjá CIA.

Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo
François Bayrou, forsætisráðherra Frakklands, hefur lagt til að tveir hátíðisdagar verði venjulegir vinnudagar. Tillagan var lögð fram samhliða fjárlögum ársins 2026 og endurspeglra viðleitni til að auka framleiðni og draga úr skuldasöfnun ríkisins.

Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka
Gisèle Pelicot verður sæmd Heiðursorðunni, æðstu heiðursorðu Frakka, á mánudag auk 588 annarra. Pelicot öðlaðist heimsfrægð þegar hún bar vitni í réttarhöldum yfir manni sínum og tugum annarra manna vegna hópnauðgunar hennar.