Lífið

„Viljum fagna þessum æðis­lega við­burði í menningu ung­linga sem okkur svo kær“

Atli Ísleifsson skrifar
Adam, Kári, Rommel og Orri standa að gerð myndarinnar sem fjallar um þátttökuferli Laugalækjarskóla í Skrekk síðasta haust.
Adam, Kári, Rommel og Orri standa að gerð myndarinnar sem fjallar um þátttökuferli Laugalækjarskóla í Skrekk síðasta haust. Aðsend/Reykjavíkurborg

„Myndin snýst um Skrekk í heild sinni. Við viljum fagna þessum æðislega viðburði í menningu unglinga sem er okkur svo kær. Þetta gefur okkur svo ótrúlega mikið.“

Þetta segir Kári Einarsson, kvikmyndagerðarmaður og nemandi í 10. bekk Laugalækjarskóla, en heimildarmynd Kára og þriggja félaga hans um hæfileikakeppnina Skrekk og þátttöku Laugalækjarskólans í henni verður sýnd í Laugarásbíói klukkan 16:30 á morgun.

Kári segir að þeir félagarnir hafi verið að klára vinnslu myndarinnar fyrr í kvöld. „Við erum flottir með fína frestunaráráttu. En þetta hafðist. Það er þá verið að „rendera“ hana núna „as we speak“ – ganga frá myndinni þannig að hægt sé að sýna hana í bíó á morgun. Við erum allavega mjög ánægðir með útkomuna og erum bara spenntir. “

Heimildarmyndin ber nafnið Skrekkur – á bakvið tjöldin, en að henni standa þeir Rommel Ivar Q. Patagoc, Orri Eliasen og Adam Son Thai Huynn, auk Kára. „Þarna er fylgst með Laugalækjarskóla að fara í gegnum Skrekksferlið. Við erum þarna saman hópurinn, búum til atriðið, og keppum í Skrekk. Myndin er því í raun um þátttöku Laugalækjarskóla í Skrekk.“

Sjá má stiklu myndarinnar að neðan.

Ótrúlega jákvæð áhrif

Kári segir að Skrekkur hafi ótrúlega jákvæð áhrif á þá sem taka þátt í hæfileikakeppninni. „Við gerðum könnun á því, fengum yfir þrjú hundruð krakka til að svara spurningum og komumst að því að yfir 80 prósent sögðust hafa kynnst einhverjum nýjum í gegnum Skrekk. Þetta er því að hafa ótrúlega jákvæð áhrif og við erum svakalega ánægð með þennan viðburð.“

Um er að ræða fjörutíu mínútna heimildarmynd sem verður heimsfrumsýnd í Laugarásbíói á morgun klukkan 16:30. „Við ákváðum að taka bíóið hérna í hverfinu á leigu og eins og staðan er núna þá verður það bara þessi eina sýning þó að myndin verði líklega sýnd á öðrum vettvangi síðar. En við leigðum þarna stærsta salinn og ætlum að sýna á morgun.“


Tengdar fréttir

Árbæjarskóli vann Skrekk

Árbæjarskóli fór með sigur af hólmi í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanemenda í Reykjavík, með atriði sitt, Annað viðhorf.

Fella­skóli og Lauga­lækjar­skóli komust í úr­slit Skrekks

Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.