Allir starfsmenn fyrirtækisins fengu tölvupóst þess efnis nú í morgun, um miðnætti í San Francisco, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru. Samkvæmt frétt Washington Post munu þeir sem skrifa ekki rafrænt undir, fá uppsagnarfrest þeirra greiddan og gert að yfirgefa fyrirtækið.
Í bréfinu frá Musk stóð að starfsfólk Twitter þyrfti að verða „harðara“ héðan í frá. Breytingar hefðu í för með sér lengri og erfiðari vinnudaga. Auðjöfurinn sagði að ekkert minna en frábær frammistaða starfsmanna myndi duga til.
Musk hefur þegar sagt upp um helmingi starfsmanna Twitter og helstu stjórnendur fyrirtækisins hafa einnig sagt skilið við það.
Í bréfinu sagði hann einnig að héðan í frá yrði meiri áhersla lögð á kóðun og verkfræði innan veggja Twitter. Þeir sem skrifi kóða verði í meirihluta starfsmanna og muni hafa mikil áhrif á starfsemina. Musk tók einnig fram að þeir starfsmenn sem koma að hönnun og vöruþróun væru enn mikilvægir.
Yfirtaka Musks á Twitter hefur haft miklar breytingar í för með sér og sömuleiðis mikla óreiðu. Auglýsendur hafa fjarlægst samfélagsmiðilinn vegna óreiðunnar þar.
Musk hefur lagt mikla áherslu á að bæta tekjutapið upp með því að taka upp áskriftarþjónustu. Í grein Washington Post segir að blaðamenn miðilsins hafi séð minnisblað sem samið var af starfsmönnum fyrirtækisins þar sem fjallað hafi verið um auglýsingar og áskriftargjald.
Þar segir að svokallaðir ofurnotendur séu líklegastir til að gerast áskrifendur en þeir séu sömuleiðis þeir notendur sem sjái flestar auglýsingar og keyri þannig auglýsingatekjur Twitter upp. Til að borga upp fyrir skaðann sem það að draga úr auglýsingum fyrir áskrifendur þyrfti gjaldið að vera 44 dalir á mánuði, samkvæmt áðurnefndu minnisblaði.
Þessi nýja áskriftarþjónusta hefur valdið miklum usla þar sem hún gerir hverjum sem er kleift að þykjast vera einhver annar, fyrirtæki eða stofnun og fá blátt hak við nafnið, sem hingað til hefur táknað að Twitter ábyrgist að viðkomandi aðili sé raunverulegur.
Sjá einnig: Kaup á bláu haki Twitter valda usla í raunheimum
Mikið undir
Mikið eru undir hjá Musk og er ljóst að hann þarf að auka tekjur Twitter verulega og draga úr kostnaði. Við yfirtöku hans tók fyrirtækið á sig um þrettán milljarða dala í skuldir. Vegna þessa er búist við því að vaxtagreiðslur Twitter fari úr um fimmtíu milljónum dala í fyrra, í rúman milljarð dala á næsta ári.
Sjá einnig: Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks
Eins og frægt er orðið skrifaði Musk undir kaupsamning á Twitter í apríl en reyndi að komast undan því að kaupa fyrirtækið. Eftir margra mánaða deilur og dómsmál stóð Musk við samninginn og keypti fyrirtækið á 44 milljarða dala.