Lífið

Blonde valin versta myndin á Razzie-verðlaunahátíðinni

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Blonde hlaut alls átta tilnefningar og sigraði í tveimur flokkum.
Blonde hlaut alls átta tilnefningar og sigraði í tveimur flokkum. Netflix

Razzie-verðlaunin svokölluðu voru veitt í Hollywood nú í morgun, degi á undan Óskarsverðlaunahátíðinni. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1980 en skipuleggjendur lýsa þeim sem „ljóta frænda Óskarsverðlaunanna“, þar sem þeir „verðlauna“ það sem þeir telja verstu myndir ársins sem og verstu frammistöðu einstakra leikara í kvikmyndum ársins.

Kvikmyndin Blonde, þar sem segir frá ævi leikkonunnar Marilyn Monroe hlaut tvenn verðlaun á hátíðinni í ár, fyrir verstu myndina og fyrir versta handritið.

Tom Hanks var valinn versti leikari í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í Elvis. Jared Leto hlaut verðlaun sem versti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Morbius.

Tom Hanks.Getty

Þá hlaut Diane Keaton verðlaun sem versta leikkona í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Mack & Rita. Adria Arjona hlaut verðlaun sem versta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í Morbius.

Diane KeatonGetty

Fyrr á árinu ákvaðu aðstandendur Razzie-verðlaunanna að draga tilnefningu hinnar tólf ára Ryan Kiera Armstrong til baka. Aðstandendur verðlaunanna höfðu þá sætt mikilli gagnrýni vegna ákvörðunarinnar að tilnefna stúlkuna og voru sakaðir um að leggja barn í einelti. Drógu þeir tilnefninguna því til baka og báðust afsökunar á málinu.

Á hátíðinni í ár tóku aðstandendur upp á þeirri nýbreytni að veita sjálfum sér verðlaun, vegna fjaðrafoksins sem skapaðist í kjölfar þess að hin 12 ára leikkona var tilnefnd.

Í tilkynningu segja aðstandendurnir að þeir hafi ákveðið að veita sjálfum sér Razzie verðlaun „fyrir að hafa tilnefnt manneskju sem hefði ekki átt að koma til greina, klúður sem var sett í hakkavél og mulið frá einum enda internetsins til annars og á öllum fjölmiðlum þar á milli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.