Verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna (SEC) kærði hóp þekktra einstaklinga fyrir alríkisdómstól í New York og sakaði þá um að hafa fengið greitt fyrir að auglýsa rafmyntirnar Tronix (TRX) og BitTorrent (BTT). Ekki kom fram í samfélagsmiðlafærslum Lohan eða annarra að þau fengju greitt fyrir að mæra myntirnar.
„Þannig var almenningur blekktur til þess að trúa því að þessar stjörnur hefðu óvilhallan áhuga á TRX og BTT og væri ekki aðeins talsmenn þeirra á launum,“ sagði í kærunni.
Auk Lohan og Akon gengust tónlistarmennirnir Ne-Yo og Lil Yachty, boxarinn og netstjarnan Jake Paul og klámleikonan Michele Mason undir sáttina. Rapparinn Soulja Boy og poppsöngvarinn Austin Mahone voru hluti af máli SEC en þeir hafa ekki gert sátt við stofnunina, að sögn AP-fréttastofunnar.
Gangast ekki við brotunum
Engin stjarnanna þarf að viðurkenna brot sín samkvæmt samkomulaginu við SEC. Þær þurfa hins vegar saman að greiða um 400.000 dollara, jafnvirði rúmra 55 milljóna króna, í sekt og til að skila illa fengnum fjármunum.
Talskona Lohan segir að hún hafi ekki vitað af því að hún þyrfti að upplýsa um greiðslurnar sem hún fékk. Hún hafi fallist á að greiða sekt til þess að leysa málið. Með samkomulaginu þarf hún að endurgreiða þóknunina upp á tíu þúsund dollara, auk vaxta og þrjátíu þúsund dollara sektar. Það er jafnvirði meira en fimm og hálfrar milljónar króna.
Fleiri stjörnur hafa brotið lög með því að upplýsa ekki um hagsmunatengsl sín á þennan hátt. Kim Kardashian féllst á að greiða einnar milljónar dollara sekt fyrir að mæla með rafmyntinni Ethereum Max við milljóni fylgjenda sinna á Instagram án þess að gera þeim ljóst að hún fengi greitt fyrir það í haust. Leikarinn Steven Seagal þurfti að greiða meira en 300.000 dollara í svipuðu máli árið 2020.