Sigurður Óli Sigurðarson, hlutabréfagreinandi hjá Landsbankanum segir í grunninn engan einn atburð orsaka þær hækkanir sem hafi sést á markaðinum í dag. Mikil lækkun hafi verið í Kauphöllinni í gær í tengslum við tilkynningu Alvotech þess efnis að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hyggist ekki afgreiða umsókn fyrirtækisins um markaðsleyfi fyrir AVT02, hliðstæðulyf Humira, að svo stöddu. Alvotech hafi svo dregið önnur félög í Kauphöllinni niður með sér sem lækkuðu sömuleiðis í gær.

„Mikil eftirvænting var eftir tilkynningunni og það mætti segja að ákveðinni ósvissu var eytt á sama tíma en ljóst var að virði hlutabréfa [Alvotech] myndi hreyfast með henni. Að sama skapi hafa fréttir af fjármögnun [Alvotech] verið jákvæðar eftir því sem leið á daginn í gær og í morgun sem virðist hafa aukið trú fjárfesta á félaginu aftur sem aftur á móti hefur hjálpað markaðinum upp á við,“ bætir Sigurður við.
„Velta markaðarins í gær og í dag var einnig umfram meðaltal mánaðarins en horfa þarf til þess að það eru alltaf kaupendur og seljendur í öllum tilfellum á hlutabréfamarkaði. Eitthvað af því fjármagni sem fór út af markaðinum í gæti því verið að koma aftur inn í dag,“ segir Sigurður jafnframt um þróunina í Kauphöllinni.
Leggur til fé inn í Alvotech til að styðja við reksturinn
Fram hefur komið að Alvotech þurfi að mæta auknum kostnaði vegna fyrirséðra tafa á markaðssetningu AVT02 í Bandaríkjunum eftir niðurstöðu Matvæla- og lyfjastofnunarinnar.
ATP Holdings ehf., dótturfélag Aztiq sem er stærsti hluthafi Alvotech, hyggst leggja fram allt að 13.600 milljónir króna (eða jafnvirði 100 milljóna dala) til að standa straum af kostnaði við rannsóknar- og þróunarverkefni Alvotech á næstu mánuðum. Fjárfestingafélagið Aztiq er í eigu Róberts Wessmann.
Innherji greindi frá því í dag að Aztiq sé að klára sölu á um helmingi af tæplega tuttugu prósenta eignarhlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan. Áætla má að félagið muni fá um 250 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut við söluna.
Vísir er í eigu Sýnar.