Börn eigi skilið frí frá áreiti síma í skólum Skúli Bragi Geirdal skrifar 9. ágúst 2023 15:01 UNESCO hefur nú lagt það til að snjallsímar eigi einungis heima í kennslustofum þegar að þeir styðja við nám. Um er að að ræða gríðarlega mikilvægt og löngu tímabært innlegg í umræðuna! 98% barna og ungmenna 9-18 ára á Íslandi eiga síma Næstum öll börn á Íslandi eiga síma en samt ekki alveg...Oft eru þetta misgóðir símar, enda fyrsti síminn oft á tíðum gamall sími sem foreldrar eru hættir að nota. Ef símar eru nauðsynlegt námsgagn þá er ljóst að hér sitja ekki öll börn við sama borð. Í mörgum skólum hér á landi eru þó til aðrar tölvur eins og spjaldtölvur sem hægt er að nota við kennslu. Í tölvum sem skólinn á og býr yfir er hægt að stjórna hvaða öpp er notuð og hversu mikið áreitið er. Símar í einkaeigu bæta við utanaðkomandi áreiti, söfnun persónuupplýsinga, aðgengi að óviðeigandi efni og öppum sem börn hafa hvorki aldur né þroska til að nota. Símabann þarf ekki að vera algjört Það er algengur misskilningur að við sem styðjum reglur og ramma um notkun snjalltækja séum á móti notkun á stafrænni tækni og lausnum. Annaðhvort erum við í hópnum sem vill leyfa síma í öllum skólum eða banna þá með öllu. Umræðan ætti þó ekki að vera svarthvít. Okkur öllum er fyrst og fremst umhugað um heilbrigða og ábyrga notkun snjalltækja. Símabann þarf ekki að vera algjört, það má útfæra slíkt með því að setja skýrar reglur. Slíkar reglur ættu eins og aðrar reglur í skólastarfi að miða að velferð og vernd barna. Við erum ekki öll eins og því hentar ekki einn og sami ramminn öllum, sérúrræði ættu þá að sjálfsögðu að vera til staðar fyrir þá sem þess þurfa. Erum við að bjóða uppá nógu mikla fræðslu um þessi mál? Fræðsla um ábyrga notkun snjalltækja og miðlalæsi í nútíma samfélagi er jafn nauðsynleg og að kenna umferðarreglurnar. Notkun er ekki sama og fræðsla. Ef við viljum leyfa síma þá þurfum við líka að spyrja okkur að því hvort við séum að gera nóg til þess að fræða og kenna. Frá þeim tíma þegar að ég byrjaði að taka mín fyrstu skref fóru foreldrar mínir að kenna mér umferðarreglurnar. Ég lærði á umferðarljósin, þýðingu umferðaskilta, fór í ökuskóla og á endanum fékk ég bílpróf 17 ára. Þetta ferli var tekið í skrefum með mismunandi fræðslu í hverju skrefi. Reglurnar eru til staðar til þess að vernda bæði mig og aðra. Með því að rétta börnum síma með óheftu aðgengi að neti og gervigreind mætti segja að við séum að setja þau undir stýri án þess að þau hafi bílpróf. Slíkt háttarlag getur endað með árekstri. Freistingin er alltaf til staðar með símann í vasanum Við sem eldri erum ættum líka að spyrja okkur áleitinna spurninga. Getum við horft á heila bíómynd, setið með vinum í matarboði, farið út í göngutúr eða legið á ströndinni í sólbaði án þess að kíkja á símann okkar? Ef við svörum þessari spurningu neitandi, hvað með börn sem mæta í skólann með símann í vasanum? Í sumar var ég að vinna í Vísindaskóla unga fólksins, þar sem ég lagði fyrir þau það verkefni að skipuleggja heilan dag án síma og nettengingar. Langflest áttu í erfiðleikum með að ljúka því sjálf. Með samtali og umræðum settum við upp heilan ónettengdan dag saman. Öll voru börnin sammála um að þeim myndi líða vel á slíkum degi. Að sama skapi voru þau flest sammála um að ef þau fengju að vera eins mikið og þau vildu í tölvum og símum þá myndi það enda með höfuðverk og vanlíðan. Vantar fleiri skákborð og spil! „Ég fer oft bara í símann því allir eru í símanum“ sagði nemandi við mig í skóla þar sem mátti vera með símann á sér öllum stundum. Mikill félagslegur þroski á sér stað í frímínútum og því mikilvægt að við horfum ekki einungis á símnotkun inni í skólastofunni. Skólar sem ég hef heimsótt með fræðsluerindi þar sem símar eru ekki leyfðir í frímínútum standa frammi fyrir því lúxusvandamáli að það vanti fleiri skákborð, borðtennisborð og spil því þar eru allir að leika sér og tala saman. Það kemur mér alltaf á óvart hvað börnin eru tilbúin sjálf að setja sér reglur um eigin símnotkun þegar að ég ræði við þau að loknum fræðsluerindum. Það er vel hægt að útfæra takmarkanir á símnotkun í skólastarfi með þeim hætti að hægt sé að nálgast símana þegar að það á að nota þá sérstaklega í kennslu og aðrar tölvur ekki tiltækar. Það er hægt að vera með box eða hólf fyrir símana þar sem þeir eru geymdir nema það sé þörf á þeim. Eins og hér áður fyrr er sími inni á kennarastofu sem hægt er að hringja í þegar að upp koma neyðartilfelli. Árið er 2023. Gervigreindin er mætt til leiks og við spólum enn í sömu hjólförunum í umræðunni um síma í skólum... -60% barna á aldrinum 9-12 ára á Íslandi eru með aðgang á Snapchat og TikTok. Aldurstakmarkið þar er 13 ára. -2014 töldu 81% barna á Íslandi í 8.-10. bekk andlega heilsu sína góða eða mjög góða. Á síðasta ári var þetta hlutfall komið undir 60%. -2022 sögðust 27% stúlkna í 10. bekk vera ánægðar með líf sitt, það hlutfall hefur hrapað á nokkrum árum úr 40%. -Aldrei hafa fleiri börn verið með uppáskrifuð svefnlyf. -Í 8.-10. bekk grunnskóla hafa 51% stúlkna og 22% stráka verið beðin um að senda af sér nektarmynd. -Fjórðungur nemenda á unglingastigi hefur rekist á umræður um leiðir til að grenna sig verulega (t.d. með lotugræðgi og lystarstoli). -Fimmtungur nemenda á unglingastigi hefur séð hatursskilaboð gagnvart minnihlutahópum, áætlanir um slagsmál og leiðir til að skaða sig líkamlega. -Stúlkur fá frekar auglýsingar á netinu um útlitsaðgerðir (t.d. brjóstastækkanir, rassastækkanir og nefaðgerðir), andlitsmeðferðir (t.d. bótox, fylliefni og nálastungur), megrunarvörur og sólbaðsstofur heldur en drengir. Embætti Landlæknis í Bandaríkjunum hefur gefið út álit þess efnis að samfélagsmiðlar séu skaðlegir börnum og að of mikil notkun þeirra leiði til meiri hættu á geðrænum vandamálum seinna á lífsleiðinni. -16,5 prósent Íslendinga á aldrinum 18 til 24 flosnuðu upp úr námi á árinu 2022 sem er hæsta hlutfall brottfalls í Evrópu. Á sama tíma og við horfum á versnandi tölfræði yfir andlega heilsu ungmenna og yfirkeyrslu dópamíns í tölvuleikjum þar sem skólinn bliknar í samanburði. -60% barna á aldrinum 9-12 ára fengu aðstoð frá foreldrum til að stofna aðgang á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að þar gildi 13 ára aldurstakmark. -13 ára aldurstakmarkið er meingallað og sett til að vernda hagsmuni samfélagsmiðlafyrirtækjanna en ekki til að vernda börn og ungmenni. Ef við tökum áreiti frá ókunnugum, aðgang að skaðlegu efni og þroska barna inn í reikninginn þá ætti aldurstakmarkið að vera hærra. -Þriðjungur barna á aldrinum 9-12 ára segir foreldra sína aldrei athuga hvað þau skoði á netinu. -Við höfum sett varnagla á algóritma sem notaðir eru í fjármálakerfinu til að koma í veg fyrir kerfishrun... ekki á algóritma samfélagsmiðla sem hafa áhrif á lýðræði, lýðheilsu og þjóðaröryggi. Við pössum því peningana okkar betur en börnin okkar! Höfundur er verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd Meira efni: Börn og netmiðlar (2021) – Fjölmiðlanefnd og Menntavísindastofnun HÍ UNESCO - Smartphones in school? Only when they clearly support learning Embætti Landlæknis í Bandaríkjunum - Social Media and Youth Mental Health Mest brottfall í Evrópu (2023) – Vísir Rannsóknir og greining – ungt fólk 2020 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Bragi Geirdal Börn og uppeldi Tækni Grunnskólar Skóla - og menntamál Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun