Í tilkynningu til Kauphallar segir að það sem valdi einkum minni afkomu sé lækkun á farsímatekjum um 138 milljónir króna ásamt hærri afskriftum sýningarrétta.
„Eins og fram kom í árs- og árshlutareikningum félagsins fyrir árið 2023, þá var afskrift sýningarrétta lægri árið 2023 vegna endursamninga við birgja. Áhrif þess á 1. ársfjórðungi ársins 2023 námu 193 m.kr.,“ segir í tilkynningunni.
„Félagið hefur ráðist í hagræðingaraðgerðir á árinu sem munu í ríkara mæli koma fram í afkomu þess á seinni helming ársins. Frekari upplýsingar um áætluð áhrif hagræðingaaðgerða á árinu verða veittar í fréttatilkynningu í tengslum við birtingu árshlutauppgjörs félagins.“
Kostnaðaraðhald verði áframhaldandi verkefni félagsins á þessu ári, ásamt áherslu á aukinn vöxt og skilvirkni í rekstri. Árshlutauppgjör félagsins sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum fram að birtingu. Árshlutauppgjör fjórðungsins verði birt eftir lokun markaða þann 7. maí.
Vísir er í eigu Sýnar.