Skoðun

Opið bréf for­seta­efna til Út­varps­stjóra

Ellefu forsetaefni skrifar

Til Útvarpsstjóra Stefáns Eiríkssonar og stjórnar RUV Ohf.

Efstaleiti 1

Reykjavík

Við undirrituð förum þess á leit við Ríkisútvarpið Ohf. að síðari kappræður vegna Forsetakosninga 2024 sem fyrirhugaðar eru þann 31.05 2024 verði með sama sniði og fyrri kappræðurnar sem fóru fram þann 3.mai síðastliðinn. Það er að allir frambjóðendur komi fram samtímis í einum þætti. Mikil og almenn ánægja var með útsendingu RUV á fyrri kappræðum og þá góðu yfirsýn sem kjósendur fengu með því fyrirkomulagi að hafa alla frambjóðendur saman.

Ef ekki verður fallist á þá lýðræðislegu kröfu að hafa þáttinn með sama sniði og síðast þá væri hægt að koma til móts við hugmynd RUV um tvo þætti með þeim hætti að varpa hlutkesti um það hverjir frambjóðenda raðast í hvorn þátt undir eftirliti umboðsmanna allra framboðanna. Það væri lýðræðislegt og heiðarlegt.

Skoðanakannanir taka aðeins til brotabrots af kosningabæru fólki á Íslandi og ef litið er til úrslita í síðustu forsetakosningum þar sem úrslit voru á skjön við niðurstöður kannana, er ljóst að ekki er lýðræðislegt að skoðanakannanir séu grundvöllur ákvarðanatöku Ríkisútvarpsins.

Við skulum heldur líta til þeirra þjóða sem stöðva birtingu skoðanakannana vikum fyrir kosningar af augljósum lýðræðisástæðum svo kjósendur geti fengið næði og ráðrúm til að mynda sér skoðanir án íhlutunar einkafyrirtækja.

Við undirrituð, þrír fjórðu frambjóðenda gerum þá kröfu að vilji okkar verði virtur samkvæmt ofangreindu.

Reykjavík 29.05.2024

Virðingarfyllst

Arnar Þór Jónsson

Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Ástþór Magnússon Wium

Baldur Þórhallsson

Eiríkur Ingi Jóhannesson

Halla Hrund Logadóttir

Halla Tómasdóttir

Helga Þórisdóttir

Jón Gnarr

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Viktor Traustason




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×