Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar 5. júlí 2024 13:20 Formaður Miðflokksins birti grein á Vísi í gær, Heilræði fyrir Nýhaldið, þar sem hann bregst nokkuð hvumpinn við grein minni í Morgunblaðinu, Mannréttindastofnun - sagan öll. Í greininni fór ég yfir aðdraganda þess að Ísland var skuldbundið um nokkurra ára skeið til að setja Mannréttindastofnun á fót með lögum þrátt fyrir skiljanleg spurningamerki um nauðsyn slíkrar stofnunar. Ég nefni í greininni að þeir sem tóku þátt í að skuldbinda Ísland með þessum hætti með atkvæðum sínum á Alþingi var til að mynda Miðflokkurinn. Þrátt fyrir að allt sem kom fram af minni hálfu hafi verið hárrétt virðist þetta hafa farið svo mikið fyrir brjóstið á formanninum að hann steig sérdeilis skoðanaglaður fram á ritvöllinn. Í grein sinni afgreiðir formaðurinn yfirferð mína á aðdraganda málsins sem svo að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið upp nýja nálgun sem felist í því að gjörðir Sjálfstæðisflokksins séu Miðflokknum að kenna því flokkurinn sá með sína tvo þingmenn hafi ekki komið í veg fyrir þær. Maður kemst ekki hjá því að finnast að þarna sé annars vegar verið að líta ansi stórt á sig og hins vegar sé þarna einkar lipur undankoma frá ábyrgð á eigin gjörðum. Formaðurinn afgreiðir svo sem alla ábyrgð í málinu snaggaralega með að það eigi bara ekkert að standa við skuldbindingar ef manni sýnist svo. Þó sú afstaða formannsins sé áhugaverð og efni í lengri umræðu nefnir hann í engu hvort hefði ekki verið ærlegra fyrir Miðflokkinn að taka hreinlega ekki þátt í skuldbindingunum yfir höfuð? Nokkrar laufléttar staðreyndir Formaðurinn hefur kvartað yfir að með Mannréttindastofnun sé verið að ausa fjármunum úr ríkissjóði og miðað við málflutninginn mætti halda að hér væri um að ræða eitt kostnaðarsamasta bákn sem sett hefur verið á laggirnar lengi. Það virðist vera að formaðurinn hafi ekki haft fyrir því að kynna sér hver útgjaldaaukning ríkissjóðs vegna Mannréttindastofnunar er en hún nemur samtals 44 milljónum króna á ári. Það skýrist mikið til af tilfærslu fjármuna þar sem til að mynda opinbert fjárframlag til Mannréttindaskrifstofu færist til stofnunarinnar með tilheyrandi samlegðaráhrifum. Það er auðvitað alltaf hlutverk okkar að vera gagnrýnin á útgjöld ríkisins og þó að 44 milljónir eru vissulega fjármunir er ekki hægt að halda öðru fram en að í öllu samhengi sé þarna um að ræða frekar takmarkaðan kostnaðarauka nýrrar stofnunar. Í samanburði við aðra útgjaldaliði má til gamans líta af handahófi til launakostnaðar ríkisins vegna tveggja þingmanna, en hann er umtalsvert hærri eða 52 milljónir króna á ári. Það er reyndar ástæða til að nefna að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert sitt á liðnum þingvetri til að lágmarka slíkar byrðar á ríkissjóð þar sem samþykkt frumvarp Bjarna Benediktssonar um breytingu á launahækkunum embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa mun spara ríkinu 283 milljónir króna á ársgrundvelli. Spyr sá sem ekki veit Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar misrökstuddum alhæfingum í ýmsar áttir og lætur sem fólk sé með sig á heilanum þegar honum er svarað. Það er rétt að ráðleggja formanninum að gjóa augunum frá slíkum samsæriskenningum og renna frekar eldsnöggt í gegnum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar kemur nefnilega fram eitt af því sem hefur vafist fyrir formanninum sem er að aðildarríki samningsins skuli starfrækja sjálfstæða stofnun sem sett sé á fót með lögum. Formaðurinn gæti í framhaldinu sleppt því að furða sig svona á hvers vegna önnur félög og stofnanir sem kenni sig við mannréttindi hafi ekki tekið þetta verkefni að sér. Örlítil rannsóknarvinna hefði dugað honum til að átta sig á að því miður er engin stofnun til staðar hér á landi sem uppfyllir þessar kröfur samningsins og því brugðið á það ráð í staðinn að opinbert fjárframlag til Mannréttindaskrifstofu renni eftirleiðis alfarið til hinnar nýju stofnunar sem uppfyllir kröfurnar. Þá kvartar formaðurinn jafnframt yfir hinum „yfirgengilegu valdheimildum“ sem hann segir að Mannréttindastofnun hafi og vísar til 7. gr. laganna sem snýr að aðgangi stofnunarinnar að upplýsingum. Réttur Mannréttindastofnunar til upplýsinga er reyndar ekki yfirgengilegri en svo að hann er sambærilegur og á við um aðrar eftirlitsstofnanir, s.s. Umboðsmann barna, Jafnréttisstofu og Persónuvernd. Munurinn á valdheimildum Mannréttindastofnunar og annarra eftirlitsstofnana er þó sá að Mannréttindastofnun hefur engin þvingunarúrræði til að fá sínu fram né heimild til að beita viðurlögum. Því er ljóst að allar yfirlýsingar um yfirgengilegar valdheimildir Mannréttindastofnunar standast einfaldlega ekki skoðun. Í þeim orðum mínum felast að sjálfsögðu ekki nein skilaboð önnur en að útskýra hvað felst í stjórnskipulegri stöðu stofnanarinnar varðandi valdheimildir þar sem það er augljóslega á reiki. Skreyting með stolnum fjöðrum Í gegnum tíðina hefur Miðflokkurinn stutt aðild Íslands að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, bæði í atkvæðagreiðslum á Alþingi og í málefnaályktunum flokksins. Óljóst er hins vegar á hverju sá stuðningur byggir þar sem báðir þingmenn flokksins ná ekki upp í nefið á sér þegar staðið er við þær skuldbindingar sem í samningnum felast. Verður ekki annað séð en að Miðflokksmenn vilji ólmir geta skreytt sig þeim fjöðrum sem felast í samningnum, en á sama tíma vera andsnúnir því að efna samninginn og agnúast með ýkjum út í þá sem að axla þá ábyrgð. Það er mikill munaður að geta leyft sér að vera ósamkvæmur sjálfum sér og gaspra án ábyrgðar og er staða Miðflokksmanna í stjórnarandstöðu til marks um það. Að endingu þessara skoðanaskipta óskar þingflokksformaðurinn þess að formaðurinn njóti sumarsins sem best og hlakkar til næstu orrustu lýðræðislegrar umræðu til gagns og gamans. Höfundur er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Opið bréf til Ingu Sæland Ragnar Erling Hermannsson Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson Skoðun Rétt tímasetning skiptir öllu máli Ole Anton Bieltvedt Skoðun Hvernig þjóð viljum við vera? Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir Skoðun Að vera með BRCA-stökkbreytingu Brynja Rún Sævarsdóttir Skoðun Opið bréf til foreldra í Stakkaborg Jónína Einarsdóttir Skoðun Heimur hins sterka og óvissan framundan Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson Skoðun Tillaga um endurskoðun á virðisaukaskattskerfi deilihagkerfisins Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fjórar leiðir til að verða besta útgáfan af þér Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Ferðalag sálna Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekkert samráð – ekkert traust Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Að vera með BRCA-stökkbreytingu Brynja Rún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til foreldra í Stakkaborg Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun og Hvammsvirkjun: Heimilt en ekki skylt Mörður Árnason skrifar Skoðun Hvernig þjóð viljum við vera? Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir skrifar Skoðun Meiri rökræður, minni áróður: Borgaraþing fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild Valgerður Björk Pálsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland Ragnar Erling Hermannsson skrifar Skoðun Atvinnuþátttaka kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson skrifar Skoðun Tillaga um endurskoðun á virðisaukaskattskerfi deilihagkerfisins Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Heimur hins sterka og óvissan framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Umsögn um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála Erla Björk Þorgeirsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf Leifur Helgi Konráðsson skrifar Skoðun Emma Lazarus og Frelsisstyttan Atli Harðarson skrifar Skoðun Rétt tímasetning skiptir öllu máli Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar Skoðun Sjálfræðissvipting þjóðar Ægir Örn Arnarson skrifar Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valkyrjur: Ekki falla á prófinu! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson skrifar Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Vinnum í lausnum Edda Sif Pind Aradóttir skrifar Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Frelsi til sölu Anton Guðmundsson skrifar Sjá meira
Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun
Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson Skoðun
Skoðun Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson skrifar
Skoðun Meiri rökræður, minni áróður: Borgaraþing fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild Valgerður Björk Pálsdóttir skrifar
Skoðun Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson skrifar
Skoðun Tillaga um endurskoðun á virðisaukaskattskerfi deilihagkerfisins Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Umsögn um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála Erla Björk Þorgeirsdóttir skrifar
Skoðun Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar
Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar
Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Guðrún Nanna Egilsdóttir,Thor Aspelund,Jóhanna E. Torfadóttir Skoðun
Mannekla á leikskólum Rakel Björk Benediktsdóttir Borg,Margrét Edda Gnarr,Hannes Daði Haraldsson Skoðun