97 brautskráðust frá HR Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2024 10:58 Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, afhendir útskriftarnema prófskírteini. HR 97 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík í Norðurljósum í Hörpu á laugardag. Fimm nemendur luku doktorsprófi frá HR að þessu sinni, allir frá tölvunarfræðideild.
Í tilkynningu frá skólanum segir að flestir nemendur hafi útskrifast frá viðskipta- og hagfræðideild, eða alls 71 nemandi, og hafi þeir allir lokið meistaraprófi. Tveir nemendur luku námi frá íþróttafræðideild; annar þeirra lauk diplómanámi og hinn meistaranámi. Einnig luku tveir nemendur námi frá tæknifræðideild; annar lauk grunnnámi og hinn diplómanámi. Þrír nemendur luku meistaranámi frá lagadeild og tveir nemendur luku meistaranámi frá tölvunarfræðideild. Þá luku tólf nemendur meistaranámi frá verkfræðideild. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.HR Í tilkynningu segir að í ræðu sinni hafi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars rætt hversu mikilvægt það væri að fólk veldi þá leið í lífinu að ljúka meistara- eða doktorsnámi, og haflað sér þannig sérþekkingar sem oft væri einstök. „En það að öðlast djúpa þekkingu á tilteknu viðfangsefni, færir einstaklingnum sjálfum líka algera lykilfærni fyrir framtíðina. Þetta á við sama hvaða fag er valið – endurskoðun, tæknifræði eða miðaldabókmenntir: það að læra eitthvað á dýptina þjálfar fólk í því að tileinka sér nýja þekkingu, æfir gagnrýna hugsun og þjálfar fólk í að þekkja fagmennsku í vísindum og góð vinnubrögð,“ er haft eftir Ragnhildi. Vigdís Hafliðadóttir og Steingrímur Teague fluttu tónlist við athöfnina.HR Hún ræddi einnig komandi þingkosningar og þær breytingar á fjármögnun íslenskra háskóla sem gerðar hafa verið á því kjörtímabili sem senn lýkur. „Við vöruðum við því að nýja líkanið mætti ekki verða til þess að skerða frelsi vísindarannsókna og sjálfstæði háskóla. Sambærileg líkön hafa verið innleidd í nágrannalöndum og eru þar talin hafa aukið pólitískan þrýsting á háskólana. Það er því ástæða til að fara varlega. Af sömu ástæðu finnst okkur skipta máli að HR sé ekki að fullu fjármagnaður af hinu opinbera – en á ykkar námstíma hefur hann verið það á bilinu 52 til 56 prósent,“ sagði Ragnhildur. Þá kvaðst Ragnhildur vona að menntamál fengju sess í pólitískri umræðu næstu vikurnar. „Alþingiskosningar eru að mínu viti alltaf gleðilegar – það að kjósendur eigi síðasta orðið um stefnu, ráðamenn og hvernig skal höggvið á hnúta er besta leið sem hefur fundist til að taka slíkar ákvarðanir. Ég vona innilega að menntamál, vísindi og nýsköpun fái þann sess sem þau eiga skilið í pólitískri umræðu næstu vikna. Án öflugs menntakerfis, frá leikskóla og upp í háskóla, verður íslenskt samfélag ekki samkeppnishæft. Og ef það gerist, þá eruð það þið, ungt fólk og vel menntað, sem við missum fyrst frá okkur og þá fylgir velferðin hratt á eftir.“ Teddy Keen, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.HR Teddy Keen, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Hann sagði útskriftardaginn tákna upphaf alls kyns stórkostlegra hluta til að hlakka til. „Að finna draumastarfið, að þróast í núverandi starfi, eða að verða leiðandi fræðimenn. Það sem við þurfum öll að muna er að það að vera hér í HR hefur gefið okkur nýja sýn á lífið. Hvort sem þú verður áfram hér á Íslandi eða ferð erlendis, mun orðspor þitt sem nemandi frá HR fylgja þér alls staðar, og það er mikilvægt að við sem höfum útskrifast frá skólanum verðum áfram góðir fulltrúar HR, bæði hér á landi og úti í heimi.“
Skóla- og menntamál Háskólar Tímamót Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira