Fjölmennt á samstöðufundi foreldra leikskólabarna á Sauðárkróki Lovísa Arnardóttir skrifar 19. nóvember 2024 11:19 Foreldrar og kennarar komu saman á samstöðufundinum og afhentu sveitarstjórnarfólki áskorun með 147 undirskriftum. Aðsend Foreldrar leikskólabarna á Sauðárkróki stóðu fyrir samstöðufundi í Húsi Frítímans í gær. Í tilkynningu kemur fram að góð mæting hafi verið á fundinn af bæði kennurum og foreldrum með börn sín.
Í tilkynningu segir að tilgangur fundarins hafi verið að fá áheyrn byggðarráðs Skagafjarðar vegna yfirstandandi verkfalls leikskólakennara í Ársölum á Sauðárkróki. Þá var þeim einnig afhentur undirskriftalisti með áskorun á sveitarstjórn að þrýsta á að samningar verði kláraðir. 147 undirskriftir Þá var sveitarstjórnarfólk einnig minnt á að standa við eldra samkomulag síðan 2016 um jöfnun launa milli opinberra starfsmanna og almenna markaðarins. Þegar listinn var afhentur voru komnar 147 undirskriftir. Í tilkynningu segir að nokkrir hafi tekið til máls á fundinum. Fyrst hafi Gunnþórunn Elíasdóttir boðið alla velkomna og þakkað Sigfúsi Inga Sigfússyni sveitarstjóra og byggðarráði fyrir að gefa viðstöddum tíma sinn. Á fundinum voru Gísli Sigurðsson formaður byggðarráðs, Einar Eðvald Einarsson varaformaður, Jóhanna Ey Harðardóttir aðalmaður og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir varamaður áheyrnarfulltrúa. Starfsfólk Kennarasambandsins á leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki hefur verið í verkfalli frá 29. október. Verkfallið er ótímabundið.Aðsend Næst tók til máls Lilja Gunnlaugsdóttir þar sem hún skoraði sveitarstjóra og meðlimi byggðarráðs að þrýsta á samninganefnd SÍS að standa við gefin loforð frá 2016 og tryggja jöfnun launa á vinnumarkaði. Hún sagði einnig kominn tíma til viðhorfsbreytinga í samfélaginu, í stað þess að líta á skólakerfið sem bagga mætti líta á það sem fjárfestingu. Kennurum langi að vera í vinnu Að lokum lagði Ásbjörg Valgarðsdóttir leikskólakennari orð í belg og sagði verkfallið líka hafa áhrif á leikskólakennara, þá langi mun frekar að vera í vinnunni með börnunum en að vera heima í verkfalli. Hún benti einnig á að leikskólinn væri vel mannaður af fagmenntuðu starfsfólki og skoraði á deiluaðila að ganga frá samningum. Fjölmennt var á fundinum sem haldinn var í gær, 18. nóvember.Aðsend Í tilkynningu segir að Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Gísli Sigurðsson hafi svo þakkað fyrir samtalið. Þeir hafi tekið undir áhyggjur viðstaddra og sögðu alla sammála um að staðan væri alvarleg. Gísli sagði að þau myndu gera sitt til að þrýsta á samninganefnd SÍS að ganga til funda og leysa þetta mál. Þá sagði Sigfús það staðfesta að samninganefndir myndu hittast á fundi í dag hjá ríkissáttasemjara. MR bættist við í gær Níu leik-, grunn- og framhaldsskólar hafa verið í verkfalli frá 29. október en Menntaskólinn í Reykjavík bættist í hópinn í gær og stendur til 20. desember. Þeim fjölgar svo um þrjá 25. nóvember næstkomandi en þá leggja kennarar við Árbæjarskóla, Garðaskóla og Heiðarskóla niður störf einnig.
Kennaraverkfall 2024 Skagafjörður Skóla- og menntamál Leikskólar Grunnskólar Framhaldsskólar Kjaramál Kjaraviðræður 2023-24 Tengdar fréttir Ekki allir sem geta verið heima heilu og hálfu dagana Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir skóla griðastað margra nemenda og því sé lögð áhersla á að þeir geti komið þangað á meðan á kennaraverkfalli stendur. Sjálf segja ungmennin óvissuna sem fylgi verkföllum erfiða. Vonir standa til að einhver skriður sé að komast á kjaraviðræður kennara og ríkis og sveitarfélaga. 18. nóvember 2024 21:02 Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Verkfall kennara við Menntaskólann í Reykjavík hófst nú á miðnætti og mun það standa fram til 20. desember ef ekki verður samið í millitíðinni. Kennarar og leiðbeinendur sem eru í KÍ leggja niður störf, sem og náms- og starfsráðgjafar. 18. nóvember 2024 06:53 „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. 17. nóvember 2024 12:23 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Fleiri fréttir Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Sjá meira
Ekki allir sem geta verið heima heilu og hálfu dagana Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir skóla griðastað margra nemenda og því sé lögð áhersla á að þeir geti komið þangað á meðan á kennaraverkfalli stendur. Sjálf segja ungmennin óvissuna sem fylgi verkföllum erfiða. Vonir standa til að einhver skriður sé að komast á kjaraviðræður kennara og ríkis og sveitarfélaga. 18. nóvember 2024 21:02
Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Verkfall kennara við Menntaskólann í Reykjavík hófst nú á miðnætti og mun það standa fram til 20. desember ef ekki verður samið í millitíðinni. Kennarar og leiðbeinendur sem eru í KÍ leggja niður störf, sem og náms- og starfsráðgjafar. 18. nóvember 2024 06:53
„Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. 17. nóvember 2024 12:23