Sigurður Ingi og óverðtryggingin - lofað upp í ermina á sér Hjalti Þórisson skrifar 27. nóvember 2024 16:42 Það var átakanlegt að fylgjast með þér Sigurður Ingi í Forystusætinu. Það átti að snuða þig um að koma kosningabombunni þinn að. Þeim varð nú ekki kápan úr því klæðinu. Þú sást til þess.„Ég verða að koma að . . .“ . . . „. . . af hverju hverju erum við ekki með löng óverðtryggðlán á föstum [nafn]vöxtum [lágum til langs tíma] eins og alstaðar í kringum okkur“ spurðirðu. En í stað þess að svara sjálfum þér og útskýra það fyrir okkur fávísum hafðir þú fengið mann í vinnu. Það átti allt að vera klappað og klárt í febrúar. Þá „eyðum við út verðtryggingunni og þegar það koma verðbólguskot á næstu tuttugu og fimm árum þá mun það ekki hafa áhrif á þennan lánastabba sem er ósanngjarnt í dag.“Synd að það sé ekki febrúar.Þú ert sem sagt að lofa því að það komi aðeins „verðbólguskot“ og þá sleppi þessi „lánastabbi“ alveg við að skila jafnvirði skuldbindinga sinna. Það er aldeilis munur. Best að taka svoleiðis lán; - ef einhver vill lána; - til dæmis lífeyrissjóðirnir. Þú ert sem sagt að svara spurningu minni úr fyrri grein (slóir neðst) með jái; - hvort þú sért til í það sjálfur að lána slík lán. Mættum við fá að vita hver þessi vinnumaður er sem þú „fékkst í vinnu“? Hver er nú reynslan af einmitt þessu og þvílíku, Sigurður Ingi ?Eins og þér var bent á í fyrri grein hefur þetta verið reynt á fyrri tíð og nýlega sem ekki hefði átt að fara fram hjá þér, og þrátt fyrir alla þekkingu og reynslu sem þá átti að vera til staðar; - eins og nú og þó meiri nú. Reynslan splunkuný. Draumurinn innan úr Seðlabankanum um „nafnvaxtakerfið“ rættist eins og kunnugt er og sprakk í andlitið á honum – sem og á öllum þeim sem stukku að tilefnislausu á þetta og í þessi gjafalán SÍ. Á þessu fjórum árun hefur raunvirði lánanna skroppið saman um fjórðung (24 %); er nú 76%. Um það hafa skuldinar lækkað í raun. Eins er með greiðslunar, sem eru nú 73% af þvi sem þær voru (á rýrnuðu nafnviðri). Ofan á þetta hefur eignin af veðinu í húsnæðinu aukist um 41 % vegna hækkana húsnæðis sem þessi lán kölluðu fram í upphafi og að verulegu leyti og naumast nokkuð verið greitt af nafnvirði lánanna (annarlegar orsakir fyrir því). Vexti stórlega neikvæði og engir raunvextir. Þetta sést allt á myndritinu í fyrri greininni. Þetta kallast þar „eignamyndun“ í gæsalöppum. Fyrir hana er ekki greiddur grænn eyrir. (Það skal þó tekið fram upp í þetta, , greiddist þó nafnvaxtamunur verðtryggðra og óverðtryggðra lána; - en er óvera og fer snarminnkandi.)Þessar húnæðishækkanir brustu á í covidinu þegar mestum húnæðisþrýstingi afléttist og, undir eins og þessi lán komu til sögunnar. Er það ekki eitthvað skrýtið !Verðbólgan, sem verið hafði við verðbólgumarkmið Seðlabankas sex ár þar á undan á tíma þar sem verðtyggð lán höfðu verið að mestu ríkjandi og verðgildirleiðréttingar þeirra (kallað verðbæting) því óverulegar (það var tilefnisleysið), fór svo af stað í kjölfarið; að langmestu leyti rakið til þessara húsnæðishækkana. Hverjir töpðuð þessum framangreinda mismun á nafnvirði og raunvirði ? Lánveitendur Sigurður, sem nú eru að klóra í bakkann með ofurvöxtum; - bankarnir, sem féllu fyrir fagnaðarernindinu innan úr Seðlabankanum um endalok verðbólgu og sjálfdauða verðtryggingar. Hverjir eru lánveitendur bankana ? Við skulum ekkert aukma þá, er það nokkuð.Á hverjum koma þessar hækkanir niður? Þú ætlar víst að redda því fólki líka; ekkert bansvítans leiguhúsnæði, ekkert hótel mamma.Finnst þér að fólk eigi að græða á því að skulda, stórgræða ! Gróðinn af þessu 2020-lánum er nú 64 %. Er ekki ærinn ávinningur að því að hafa öruggt húsnæði, viðráðanlega greiðslubyrði (væri húsnæðisverð í hófi), greiða sjálfum sér í afborgunum og einnig í vöxtum séu lánin við lífeyrissjóði.Er ekki sanngjarnt, Sigurður, að fólk endurgreiði jafnvirði þess sem það fær að láni !! Ha ! Nei, segja Framsóknarmenn og Flokkur fólksins, við ætlum sko ekki að vera með neitt bansvítans raunvaxtakerfi.Gangi órar þeirra hins vegar eftir og hér verði engin verðbólga þá greiðast raunvextir, hverjir sem þeir verða. Hvers vegna ? Ætli menn skilji það ? Það er vegna þess, sjáðu til, að ef engin verðbólga er þá heldur krónan gildi sínu og raunvirði og jafnvirði endurgreiðist sjálfkrafa og þar með raunvextir, - nákvæmlega eins og er með verðtryggð lán. Þannig er með verðtryggð lán Sigurður, að þau skila jafnvirði; gera menn að skilamönnum.Þau sem lofa því upp í ermi sína að hér verði engin verðbólga boða það hins vegar, án þess að átta sig á þvi, að skuldir endurgreiðist þá á jafnvirði, með raunvöxtum. Sé þetta tryggt, - að engin verðbólga sé -, þá er fjárskuldbindinar verðtryggðar. Áttarðu þig á því ? Jafnvirði greiðist. Allt er þá í reynd verðtryggt; – verðtygging þá óvirk, í pásu; – en vomir yfir ef óstjórn ríkir og lukkuriddarar með ódýrt lánaflóð ekki á ferðinni.Þannig er það í útlandinu segirðu; en er það svo ? Svo ætlarðu að hygla byggingabransanum með skatttekjum okkar. Laun í byggingabransanum eru ekki orsök þessara hækkana né efnis og rekstarkostnaður verktakanna; hvort sem þar er okrað eða ekki. Ætlar þú að niðurgreiða húsnæðishækkanirnar sem 2020-lánin framkölluðu með skattpeningum okkar. Svo eru að auki miklu alvarlegri orsakir fyrir húsnæðishækkunum sem hvorki þú né aðrir munu ráða við. Kannski þú útskýrir þetta í Leiðtogaumræðunum á föstudaginn. Höfundur er ekki skuldari slíkra lána. Slóðir:Forystusætið 25. nóv – sjá 10:50www.ruv.is/sjonvarp/spila/x24-forystusaetid/37159/b2c0rq fyrri greinwww.visir.is/g/20242643645d/-haekkar-bara-og-haekkar- Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Framsóknarflokkurinn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Efnahagsmál Mest lesið Heilbrigðiskerfi framtíðarinnar Victor Guðmundsson Skoðun Borgum rétta vexti - Landsbankinn verði banki allra landsmanna Baldur Borgþórsson Skoðun Braggablús Ölmu Eyþór Kristleifsson Skoðun Afreksverk Lilju Daggar Alfreðsdóttur Atli Valur Jóhannsson Skoðun Er „woke-ismi“ genginn of langt? Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir Skoðun Ráðherrann Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Fyrirtæki sem stundar stórfelld mannréttindabrot í Palestínu haslar sér völl á Íslandi Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Helvítis Píratarnir Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Fullorðins greining á loftslags stefnumálum Páll Gunnarsson,Matthías Ólafsson Skoðun Stórsigur fyrir lífeyrisþega Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Áskorun í minnkandi heimi Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ný nálgun í heilbrigðismálum – bréf frá einstakling með ADHD Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Er þetta gott plan í heilbrigðismálum? Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Einkaframtakinu þarf að fylgja ábyrgð Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Vindorkuver? Ekki svona, ekki núna! Eva Dögg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Sigurður Ingi og óverðtryggingin - lofað upp í ermina á sér Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Sögulegt tækifæri til breytinga með Samfylkingunni Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hvernig getur þú stutt þjóðarmorð? Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Braggablús Ölmu Eyþór Kristleifsson skrifar Skoðun Viljum við frjálshyggju? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Af hverju að kjósa Viðreisn - C fyrir frelsi og frið Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fleiri læk – betra skap Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Öflugt atvinnulíf undir forystu Sjálfstæðisflokksins Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Wybory islandzkie i sprawy polskie Maksymilian Haraldur Frach skrifar Skoðun Grasrótin í brennidepli undir forystu Ásmundar Einars Ólafur Magnússon skrifar Skoðun United Silicon í Reykjanesbæ – víti til varnaðar fyrir Ölfus! Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun 108 ár – hverjum treystir þú? Kjartan Helgi Ólafsson skrifar Skoðun Róluvallaráðherra Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Hveitipoki á fjörutíu þúsund Katrín Harðardóttir skrifar Skoðun Tími til að endurvekja frelsið Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Einkaframtakið í sinni fegurstu mynd Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Viðreisn vakti hjá mér von Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Er „woke-ismi“ genginn of langt? Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvernig metum við listir og menningu? Andri Björn Róbertsson skrifar Skoðun Ef þú vilt breytingar - kjóstu þá flokk sem tryggir breytingar Víðir Reynisson,Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Sverrir Bergmann,Arna Ír Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fóturinn tekinn af vegna tannpínu Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Á ábyrgð okkar allra Grímur Grímsson skrifar Skoðun „Þú ert þjóðinni til skammar að spyrja þessara spurninga“ Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Hin íslenska láglaunastefna Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Mikilvægasta kosningamálið Hrafnkell Guðnason skrifar Sjá meira
Fyrirtæki sem stundar stórfelld mannréttindabrot í Palestínu haslar sér völl á Íslandi Hjálmtýr Heiðdal Skoðun
Skoðun United Silicon í Reykjanesbæ – víti til varnaðar fyrir Ölfus! Berglind Friðriksdóttir skrifar
Skoðun Ef þú vilt breytingar - kjóstu þá flokk sem tryggir breytingar Víðir Reynisson,Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Sverrir Bergmann,Arna Ír Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirtæki sem stundar stórfelld mannréttindabrot í Palestínu haslar sér völl á Íslandi Hjálmtýr Heiðdal Skoðun