Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2024 13:02 Dana Björg Guðmundsdóttir er mjög fljót og það sýndi hún í fyrsta leiknum sínum á EM i handbolta. EHF Íslenska landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir er fljót á fæti og hún getur nú bakkað það upp með tölum frá Evrópumótinu í handbolta.
Dana Björg spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti í gær þegar íslenska kvennalandsliðið tapaði naumlega, 27-25, á móti Hollandi. Frábær leikur hjá íslensku stelpunum á móti einu besta liði heims. Dana er nýkomin inn í íslenska landsliðið því fyrstu landsleikir hennar voru í október síðastliðnum. Dana er búsett í Noregi og spilar með Volda. Hún hefur staðið sig það vel þar að Arnar Pétursson ákvað að velja hana í EM-hópinn sinn. Hún er eins og er varamaður Perlu Albertsdóttur en fékk að spila í jöfnum leik á móti Hollandi. Dana spilaði kannski bara í tólf og hálfa mínútu og náði ekki skoti á marki en hún kom sér ofarlega á blað á einum tölfræðilista. Mótshaldarar mæla hlaupahraða leikmanna á mótinu og Dana hljóp hraðast af íslensku leikmönnunum í leiknum. Dana mældist nefnilega á 27,11 kílómetra hraða. Næstfljótust af íslensku stelpunum var Perla Albertsdóttir sem mældist á 26,03 kílómetra hraða. Þórey Rósa Stefánsdóttir var síðan þriðja á 25,88 kílómetra hraða. Aðeins tveir leikmenn hlupu hraðar en okkar konu i fyrstu umferð riðlakeppninnar en það voru pólska stelpan Adrianna Górna og svissneska stelpan Mia Emmenegger. Hér fyrir neðan má sjá topp tíu listann. EHF EURO 2024
EM kvenna í handbolta 2024 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti Börsungar fóru afar illa með Newcastle í seinni hálfleik Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Liverpool - Galatasaray | Tekst Púlurum að snúa dæminu við? Fótbolti Besta sætið: Harry Kane þarf að rífa fram markmannshanskana Sport Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Fótbolti Fleiri fréttir Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Sjá meira