Viðskipti innlent

Flug­um­ferð aldrei verið meiri en á síðasta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS.
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS. Isavia ANS

Rúmlega tvö hundruð þúsund flugvélar flugu í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið á síðasta ári. Um er að ræða metár hjá flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia ANS sem er dótturfélag Isavia og sinnir flugleiðsöguþjónustu í innanlands- og alþjóðaflugi í íslenska flugstjórnarsvæðinu.

Þar segir að sístækkandi hópur viðskiptavina séu flugfélög sem fljúga milli Miðausturlanda og Norður-Ameríku, svo sem Turkish Airlines, Qatar Airways, Emirates og Air India. Eftir að stríð í Úkraínu hófst hafi ferðum fjölgað milli Austurlanda fjær og Evrópu.

Árið 2024 var Icelandair stærsti viðskiptavinur Isavia ANS, þar á eftir koma Turkish Airlines, United Airlines, Play, Lufthansa og Scandinavian Airlines.

„Íslenska flugstjórnarsvæðið er um fimm og hálf milljón ferkílómetrar að stærð og er eitt stærsta flugstjórnarsvæði heims. Svæðið nær frá Greenwich-lengdarbaugnum í austri og vestur fyrir Grænland, frá Norðurpólnum og suður fyrir Færeyjar, langleiðina til Skotlands.

Að meðaltali fara um 540 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×