Körfubolti

Yfir­maðurinn vill stytta leiki í NBA

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Adam Silver er hrifinn af því að stytta leiki í NBA.
Adam Silver er hrifinn af því að stytta leiki í NBA. getty/Mustafa Yalcin

Adam Silver, yfirmaður NBA-deildarinnar í körfubolta, er opinn fyrir því að stytta leiki í deildinni um átta mínútur.

Talsvert hefur verið rætt og ritað hvað sé hægt að gera til að bregðast við minnkandi áhuga og áhorfi á NBA.

Silver var gestur í the Dan Patrick Show þar sem hann talaði fyrir því að stytta leikhlutana í NBA um tvær mínútur. Leikurinn yrði þá fjörutíu mínútur, eins og hann er alls staðar annars staðar, en ekki 48 mínútur. 

„NBA er eina deildin sem spilar 48 mínútur. Ég er hrifinn af fjórum tíu mínútna leikhlutum. Ég er ekki viss um að margir deili þeirri skoðun,“ sagði Silver.

„Ef við tökum út fyrir sviga hvað þetta þýðir fyrir met og annað slíkt er tveggja tíma leikur meira í takt við sjónvarpshegðun nútímans. Fólkið í höllunum er ekki að biðja okkur um að stytta leikina en sem sjónvarpsviðburður; tveggja tíma leikur er á Ólympíuleikunum og í háskólanum. Þetta yrði stór breyting á leiknum. Eitthvað þessu lagað yrði rætt um yfir lengri tíma.“

Silver hefur verið yfirmaður NBA-deildarinnar frá 2014 en hann tók við starfinu af David Stern.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×