Samruninn muni taka langan tíma Árni Sæberg skrifar 21. júlí 2025 16:28 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku. vísir Kvika banki og Arion banki gera ráð fyrir að samrunaferli félaganna tveggja muni taka þónokkurn tíma en tilkynnt var þann 6. júlí að stjórnir félaganna hefðu ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félaganna og undirritað viljayfirlýsingu þess efnis.
Í sameiginlegri yfirlýsingu í dag segir að markmiðið með samrunanum sé að sameina krafta félaganna og búa til sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini. Samruninn verði einn sá umfangsmesti sem ráðist hefur verið í á íslenskum fjármálamarkaði og ger megi ráð fyrir að ferlið taki þónokkurn tíma. Reglulega verði greint frá stöðu mála og framvindu viðræðna eftir því sem við á og ástæða er til. Óska eftir forviðræðum í ágúst Fyrstu skrefin séu áreiðanleikakannanir og samrunaviðræður milli félaganna, og sú vinna sé þegar hafin. Stefnt sé að því að óska eftir forviðræðum við Samkeppniseftirlitið í ágúst, þar sem kynnt verði markmið með samrunanum og sá ávinningur sem muni hljótast af honum, bæði fyrir viðskiptavini og íslenskan fjármálamarkað. Vonast sé til að forviðræður, samningagerð og áreiðanleikakannanir klárist á næstu mánuðum. Að því gefnu að forviðræður við Samkeppniseftirlitið gangi vel, verði samruninn tilkynntur formlega til eftirlitsaðila og síðar lagður fyrir hluthafafundi beggja félaga. Kvika verið virkur keppinautur Ef af samruna Kviku og Arion verður muni það styrkja og efla bankaþjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags, einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta. Við samrunann skapist tækifæri til áhættudreifingar og breiðari tekjumyndunar en hann leiði ekki síður til aukins hagræðis í starfsemi sameinaðs félags og þar með á íslenskum fjármálamarkaði. Kvika hafi síðustu ár verið virkur keppinautur á mörkuðum, meðal annars með vörumerkið Auði, sem hafi haft mikil áhrif á innlánamarkað og nýlega farið inn á húsnæðislánamarkað með góðum árangri. Eftir sameiningu muni vörumerki félaganna halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki fyrir viðskiptavini.
Arion banki Kvika banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira