Viðskipti erlent

Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta ára­tug

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk í Hvíta húsin fyrr á árinu.
Elon Musk í Hvíta húsin fyrr á árinu. AP/Alex Brandon

Stjórn Tesla hefur beðið hluthafa um að samþykkja launapakka fyrir Elon Musk, forstjóra fyrirtækisins og stærsta hluthafa, sem hljómar upp á allt að billjón dala yfir næsta áratuginn. Musk er þegar auðugasti maður heimsins.

Greiðslurnar færu fram í áföngum, eftir velgengni fyrirtækisins, og yrðu í formi hlutafjár.

Samkvæmt frétt Wall Street Journal er jákvæðasta sviðsmyndin í pakkanum á þann veg að fyrirtækið yrði metið á 8,5 billjónir dala. Þá fengi Musk um tólf prósent hlut í félaginu og yrði sá hlutur metið á rétt rúmlega billjón dala. Í heildina myndi Musk eiga um 29 prósent í félaginu.

Billjón dala samsvarar um 122 billjónum króna (122.000.000.000.000) og er markaðsvirði Tesla þessa dagana rétt yfir einni billjón dala.

Í bréfi til hluthafa sagði Robyn Denholm, stjórnarformaður Tesla, að það væri gífurlega mikilvægt fyrir fyrirtækið að halda Musk í starfi forstjóra. Sérstaklega ef Tesla ætti að verða verðmætasta fyrirtæki heimsins.

Hún sagði launapakkann sniðinn í samræmi við „langtímahagnað hluthafa með hvötum sem munu ná fram því besta hjá okkar framsýna leiðtoga“.

Háleit markmið

Meðal markmiða sem Tesla þyrfti að ná undir stjórn Musks eru, auk markaðsvirðisins sem nefnt er hér ofar, að afhenda tuttugu milljónir bíla og milljón vélmenni til viðskiptavina og að koma milljón sjálfkeyrandi leigubílum í umferð.

Fyrirtækið þyrfti einnig að hafa tíu milljónir eigenda í áskrift að þjónustu sem gerir bíla þeirra sjálfkeyrandi.

Þar að auki þyrftu árstekjur félagsins að verða fjögur hundruð milljarðar dala, fyrir skatta og önnur gjöld. Í fyrra voru þær tekjur eingöngu 16,6 milljarðar.

Denholm lagði einnig til við hluthafa að samþykkja að Tesla fjárfesti í xAI, sem er gervigreindarfyrirtæki Musks. Atkvæðagreiðslan mun fara fram þann 6. nóvember.

Fyrri samningur ólöglegur

Musk hefur að miklu leyti starfað launalaust fyrir Tesla á undanförnum árum eftir að umfangsmikill kaupréttarsamningur sem gerður var við hann árið 2018 var dæmdur ólöglegur. Úrskurðurinn fól í sér að Musk varð af fúlgum fjár, eða allt að 7,5 billjónum króna.

Sjá einnig: Vill færa skráningu Tesla til Texas

Stjórnin samþykkti þó í síðasta mánuði hlutafjárgreiðslu til Musks sem metin var á um 23,7 milljarða dala, eða tæpar þrjár billjónir króna.

Hann á einnig fyrirtæki eins og xAI og SpaceX, auk annarra.

Í frétt WSJ segir að hluthafar í Tesla hafi á undanförnum árum efast um það hversu mikið Musk einbeitti sér í raun að rekstri Tesla. Hann hefur meðal annars lagt mikla áherslu á pólitík á undanförnum árum og árið 2022 varði hann fúlgum fjár og miklum tíma í að kaupa og taka yfir Twitter, sem nú heitir X, og er hann mjög duglegur við að birta færslur þar.

Vörumerkið Tesla hefur beðið mikla hnekki af bandalagi Musks við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Vinstri sinnað fólk í Bandaríkjunum og í Evrópu dró úr kaupum á bílum frá Tesla og það sama gerðist á hægri vængnum í Bandaríkjunum, þegar allt fór í háaloft milli Musks og Trumps.

Sjá einnig: Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump

Aukinn markaðshlutdeild kínverskra fyrirtækja á sviði rafmagnsbíla hefur einnig komið niður á rekstri Tesla. Á fyrsta fjórðungi þessa árs dróst sala Tesla saman um 71 prósent, samanborið við sama fjórðung í fyrra. Á öðrum ársfjórðungi var samdrátturinn sextán prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×