McGregor í langt bann en gæti keppt í Hvíta húsinu Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2025 21:51 Hinn 37 ára gamli Conor McGregor verður í banni fram í mars á næsta ári. Getty/Leonardo Fernandez MMA bardagakappinn Conor McGregor hefur verið dæmdur í átján mánaða bann frá keppni í UFC vegna brota á reglum um lyfjaeftirlit. Hann mun þó geta byrjað að keppa aftur á næsta ári, vel tímanlega fyrir bardagakvöldið á afmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta fái hann að keppa þar.
McGregor, sem hefur ekki keppt síðan að hann fótbrotnaði í bardaga gegn Dustin Poirier sumarið 2021, var í þrígang boðaður í lyfjapróf á síðasta ári en skrópaði í öll skiptin. CSAD, sem sinnir lyfjaeftirliti í bardagaíþróttum, segir að til hafi staðið að taka Írann í lyfjapróf 13. júní, 19. september og 20. september en það hafi aldrei tekist. Samkvæmt reglum UFC-bardagasamtakanna eiga íþróttamenn að upplýsa hvar þeir eru staddir hverju sinni, svo hægt sé að fá frá þeim lífsýni án viðvörunar. CSAD segir þó að bann McGregors hafi verið stytt úr 24 mánuðum í 18 vegna þess hve samstarfsfús hann var og í ljósi meiðslastöðu hans. Bannið tók gildi 20. september í fyrra, eftir síðasta skiptið þar sem það mistókst að fá McGregor í lyfjapróf, og því rennur það út 20. mars á næsta ári. McGregor hefur haldið því fram að hann muni berjast á UFC-kvöldinu í Hvíta húsinu, sem nú hefur verið ákveðið að verði haldið 14. júní á næsta ári, á áttræðisafmæli Donalds Trump. Dana White, forseti UFC, segir ljóst að McGregor hafi mikinn áhuga á því en að ekkert sé frágengið hvað það varðar.
MMA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landa Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Sjá meira