MMA

MMA

Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Fréttamynd

Hitnar í kolunum: McGregor hnakkreifst við Holloway

Innan við mánuður er til stefnu þar til að Conor McGregor, eitt þekktasta nafn bardagheimsins, snýr aftur í bardagabúrið á vegum UFC og berst við Max Holloway. Það verður í annað skiptið sem kapparnir mætast í búrinu. Þeir hnakkrifust í beinni útsendingu í nótt.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kallaði Michelle Obama karl­mann á af­mælis­hátíð Trump

Keppandi sem tók þátt í bardagamóti við Hvíta húsið í tilefni af afmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær kallaði Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, karlmann í viðtali eftir bardaga. Áhorfendur ögruðu einnig kanadískum keppanda með hrópum um innlimun Kanada.

Erlent
Fréttamynd

Gefa Gunnari til­gang

Líkt og hjá kollegum þeirra í Reykjavík MMA er mikil gróska í Mjölni hvað varðar bardagafólk sem vill leggja það fyrir sig að komast lengra í íþróttinni og keppa, bæði hér heima og erlendis.

Sport
Fréttamynd

Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari

Vitali Korshak úr Reykjavík MMA gerði sér lítið fyrir og sigraði Ali Albazi er kapparnir mættust í bardagabúrinu á vegum Caged Steel í gærkvöldi og hefndi þar með fyrir ósigur liðsfélaga síns hér heima undir lok síðasta mánaðar. 

Sport
Fréttamynd

Geta hefnt fyrir ó­farir Hákonar annað kvöld

Fjórir bardagamenn frá Reykjavík MMA berjast á bardagakvöldi Caged Steel 42 í Doncaster á Englandi á morgun. Einn þeirra mætir Ali Albazi sem hafði betur gegn Hákoni Erni Arnórssyni á bardagakvöldi hér í Reykjavík á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Nelson með augun á bar­daga í ár

Íslenski UFC bardagakappinn Gunnar Nelson ætlar sér að berjast í ár. Gunnar átti að mæta Neal Magny í bardagabúrinu síðasta sumar en þurfti að draga sig úr þeim bardaga vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Nel­son með á­kall til ráða­manna: „Er hálf galið“

UFC bar­daga­kappinn Gunnar Nel­son, sem jafn­framt er þjálfari í blönduðum bar­dagaíþróttum hjá Mjölni, kallar eftir því að komið verði á al­menni­legu reglu­verki í kringum íþróttina hér á landi. Það sé hálf galið að slíkt hafi ekki verið gert nú þegar að íþróttin sé í mikilli sókn og bar­daga­kvöld á heims­mæli­kvarða verið haldið í Reykja­vík.

Sport
Fréttamynd

„Sagði að ég væri lítill svo ég sagði honum að halda kjafti“

Mikil spenna ríkir fyrir MMA bar­daga­kvöldi sem fer fram í Reykja­vík í kvöld. Ungur Mos­fellingur, Há­kon Örn Arnórs­son, keppir í aðal­bar­daga kvöldsins sem jafn­framt er titil­bar­dagi. Óhætt er að segja að Há­kon og and­stæðingur kvöldsins séu ekki bestu vinir eins og sannaðist í gær.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að sanna að hann sé bestur í Evrópu

Bardagakappinn Viktor Gunnarsson mætir Caleb Mullin á Glacier Fight Night á laugardagskvöldið í Úlfársárdalnum. Hann segist vera klár í slaginn og ætlar að sýna að hann sé sá besti í Evrópu. 

Sport
Fréttamynd

Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt

UFC-bardagakappinn Cameron Smotherman missti meðvitund nokkrum sekúndum eftir að hafa náð vigt á föstudag í Las Vegas, sem varð til þess að forsvarsmenn aflýstu fyrirhuguðum bardaga hans gegn Ricky Turcios.

Sport
Fréttamynd

Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu

Bardagakappinn Geronimo dos Santos, sem keppti lengi í blönduðum bardagalistum (MMA) og Bare Knuckle Fighting Championship (BKFC), er látinn 45 ára að aldri eftir að hafa drukknað heima í Brasilíu.

Sport