Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. nóvember 2025 17:11 Kim Kardashian og Naomi Watts fara með aðalhlutverkin í þáttunum. Nýútkomnu lögfræðiþættirnir All's Fair með Kim Kardashian í aðalhlutverki hafa fengið á baukinn hjá gagnrýnendum. Þáttunum hefur verið lýst sem glæpi gegn sjónvarpi og verstu dramaþáttum frá upphafi og fá þeir núll stjörnur hjá gagnrýnanda Guardian.
All's Fair eru hugarsmíði þaulreynda framleiðandans Ryans Murphy, sem hefur gert þættina Nip/Tuck (2003–2010), Glee (2009–2015), American Horror Story (2011–) og Monster (2022–). Þættirnir fjalla um farsælan skilnaðarlögfræðing á kvennalögmannsstofu í Kaliforníu og fara Kim Kardashian, Naomi Watts, Teyana Taylor og Sarah Paulson með aðalhlutverk. Illa skrifaðir og illa leiknir Þættirnir hófu göngu sína í dag þegar fyrstu þrír þættirnir komu út. Fyrstu dómarnir um þættina eru sömuleiðis farnir í loftið og eru þeir vægast sagt slæmir. Í gagnrýni Hollywood Reporter er þáttunum lýst sem innantómum og óeftirminnilegum, gagnrýnandi The Times segir þættina mögulega verstu dramaþætti frá upphafi og í The Telegraph eru þættirnir sagðir glæpur gegn sjónvarpi. Lucy Mangan, gagnrýnandi Guardian, gengur þó hvað harðast fram og gefur þættinum heilar núll stjörnur. Hún segir í upphafi dómsins að hún hafi ekki gert sér grein fyrir því að mögulegt væri að gera svona lélegt sjónvarpsefni. Watts, Kardashian og Nash í hlutverkum sínum. Handritið sé algjör hneisa og frammistaða aðalleikaranna enn verri. Kim Kardashian sé jafn svipbrigðalaus og við mætti búast. Naomi Watts stæri sig og setji á sig fýlustút í aðalhlutverkinu og sé svo stirð í framsögn að það heyrist nánast braka í liðamótum hennar. Hefðu leikararnir verið meðvitaðir um að tónninn ætti að vera lummó og æsilegur segir gagnrýnandi að Murphy hefði kannski komist upp með þættina. Hins vegar virðist enginn hlutaðeigandi vita hvað hann sé að gera, fléttan sé herfileg og persónurnar virðist vera staddar í ólíkum verkum. Kalt er það Klara. Kalt er það Kim.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Segir nei takk við jakkafatapésana Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira