Ætlar að endurreisa Niceair Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. desember 2025 11:10 Martin Michael er sagður ætla að endurreisa Niceair. Þýskur athafnamaður hyggst endurreisa ferðaskrifstofuna Niceair og hefur af því tilefni boðað til blaðamannafundar í flugstöðinni á Akureyri í næstu viku. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Niceair hefur mikla trú á verkefninu enda Norðlendingar komnir á bragðið með að fljúga til Evrópu án viðkomu á Keflavíkurflugvelli.
Martin Michael segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að helstu spurningum verði svarað um endurreisnina þriðjudaginn 16. desember klukkan 11:45. Martin var markaðsfulltrúi Niceair og fulltrúi félagsins í Þýskalandi. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, stofnandi Niceair og framkvæmdastjóri, þekkir vel til hans. „Mér líst mjög vel á þetta og myndi halda að flugleiðin Akureyri - Kaupmannahöfn myndi ganga mjög vel. Hún gekk mjög vel hjá okkur.“ Niceair fór í jómfrúarferð sína í júní 2022 en varð gjaldþrota tæpu ári síðar. Niceair var ekki með flugrekstrarleyfi heldur samdi það við portúgölsku flugvélaleiguna Hi Fly. „Endalok Niceair voru mjög svipleg. Við vorum svikin af okkar erlenda samstarfsaðila sem er rosalega sorglegt að rifja upp,“ segir Þorvaldur. Easy Jet hafi gripið gæsina við fall Niceair og byrjað að fljúga á milli Akureyrar og Bretlands. „Við vorum búin að ryðja brautina, leggja í markaðsrannsóknir og sanna að það var markaður til staðar. Akureyringar og Norðlendingar voru komnir á bragðið að nota Kastrup sem sinn helsta tengivöll. Það er minni fyrirhöfn en nokkurn tímann að fara til Keflavíkur.“ Þorvaldur segist vona að endurreisn Niceair gangi vel og Martin njóti sama velvilja og hann hafi notið á sínum tíma. Martin segist munu greina frá fyrirætlunum félagsins á þriðjudag. Veistu meira um málið? Hvert stendur til að fljúga? Sendu okkur fréttaskot.
Fréttir af flugi Þýskaland Akureyri Niceair Akureyrarflugvöllur Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira