Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Árni Sæberg skrifar 11. desember 2025 11:59 Hagstofa Íslands hefur tekið saman tekjuafkomu ríkisins á þriðja ársfjórðungi. Vísir/Hanna Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 14,8 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2025 eða sem nemur 1,2 prósent af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á þriðja ársfjórðungi 2024 53,80 milljörðum eða 4,5 prósent af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs. Útgjöld vegna launakostnaðar og kaupa á vöru og þjónustu héldu áfram að aukast á verðlagi hvers árs. Töluvert dró úr öðrum tilfærslum, sem voru óvenjuháar á árinu 2024 vegna jarðhræringa og eldgosa við Grindavík.
Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofunnar segir að í heild sé áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 7,5 prósent á verðlagi hvers árs samanborið við þriðja ársfjórðung 2024. Tekjur af sköttum og tryggingagjaldi hafi aukist um 8,4 prósent. Áætlað sé að heildarútgjöld hafi dregist saman um 0,4 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025 miðað við sama tímabil 2024. Útgjöld vegna launakostnaðar og kaupa á vöru og þjónustu hafi haldið áfram að aukast á verðlagi hvers árs. Töluvert hafi dregið úr öðrum tilfærslum, sem hafi verið óvenjuháar á árinu 2024 vegna jarðhræringa og eldgosa við Grindavík. Bráðabirgðagögn bendi til þess að einnig hafi dregið úr greiddum vaxtagjöldum og fjárfestingu hins opinbera. Búast megi við að niðurstöður taki breytingum þegar uppgjör liggur fyrir. Þá segir að vert sé að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðist við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn, ESA2010. Með hinu opinbera teljist meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs, sem hafi veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess.
Rekstur hins opinbera Efnahagsmál Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira