Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. janúar 2026 10:43 Athygli vakti að verðið breyttist í tvígang. Eldsneytisverð hjá Costco lækkaði í morgun í takti við innleiðingu kílómetragjalds. Athygli vekur að verðið lækkaði í tvígang og leit um tíma út fyrir að munurinn á milli Costco og annarra söluaðila yrði lítill sem enginn. Nú kostar lítrinn 171,1 krónu á bensíni og 193,3 krónur á dísel hjá Costco. Lækkunin á bensíni í prósentutölum er ívið meiri en hjá samkeppnisaðilum.
Líkt og fram hefur komið hefur eldsneytisgjald lækkað um í kringum þrjátíu prósent á nýju ári eftir að ný lög um kílómetragjöld tóku gildi. Þannig fór verð á bensíni hjá Orkunni á Laugavegi sem dæmi úr 308,5 krónum og í 212 krónur. Verð á dísillítranum úr 314,2 krónum og í 226,9 krónur. Er það um 31 prósenta lækkun og um 28 prósenta lækkun. Costco hefur um árabil boðið upp á lægsta verðið á eldsneyti hér á landi og biðu margir spenntir í morgun á fyrsta opnunardegi verslunarinnar 2026 eftir nýjum verðum í ljósi innleiðingar kílómetragjalda. Bensín hjá Costco kostaði fyrir breytingar 267,7 krónur og dísill 280,7 krónur. Neytendur í Facebook hópnum Costco- Gleði hafa fylgst vel með. Klukkan níu í morgun birtist þar mynd af nýju eldsneytisverði hjá Costco, bensín á 182,1 krónu og dísel á 204,3 krónur. Vöktu þau verð mikla athygli enda hefði þá einungis munað einni krónu á milli bensíns hjá Costco og bensíns hjá ódýrustu stöðvum samkeppnisaðilanna. „Miðað við mikla lækkun á heimsmarkaðsverði er Costco að auka álagninguna,“ skrifaði einn neytenda í hópnum. 35 mínútum síðar birtist hinsvegar inni á hópnum ný mynd af eldsneytisverðum hjá heildsölunni og er verðið 171,1 króna á bensínlítrann en 193,3 krónur á dísellítrann. Munar því tólf krónum á lítranum hjá Costco og lægstu verðum hjá samkeppnisaðilum á bensíni og ellefu krónum á dísel. Lækkunin nemur 36 prósentum á bensíni, sem er ívið meira en hjá samkeppnisaðilum. Lækkun á dísel nemur 31 prósenti.
Neytendur Bensín og olía Costco Kílómetragjald Skattar, tollar og gjöld Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira