Blendnar tilfinningar við upphaf niðurrifs í Grindavík Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. janúar 2026 14:31 Nokkur hús brunnu eða fóru undir hraun. Skemmdir urðu á enn fleiri húsum vegna sprungna sem mynduðust í bænum. Vísir/Vilhelm Þrjátíu til fjörutíu fasteignir sem urðu fyrir altjóni í jarðhræringum og eldgosi við Grindavík síðustu ár verða rifin niður á þessu ári. Þrjú hús verða rifin á næstu vikum. Forseti bæjarstjórnar segir um blendnar tilfinningar að ræða en niðurrifið markar upphaf endurreisnar bæjarins.
Í þessum mánuði mun Grindavíkurbær ráðast í örútboð á niðurrifi 30 til 40 húsa sem hafa orðið fyrir altjóni á síðustu árum í náttúruhamförunum á Reykjanesinu en fyrstu þrjár fasteignirnar sem eru við Mánasund og Mánagötu verða rifnar á næstu vikum. Ásrún Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir bæði um mikil tímamót að ræða enda marki komandi niðurrif fyrsta skrefið í uppbyggingu og endurreisn bæjarins. „Þetta er erfitt mál. Það eru miklar tilfinningar sem þarna liggja undir. Þetta eru eignir fólks sem hafa í einhverjum tilfellum byggt þessi hús. Þetta er staðan sem við stöndum frammi fyrir núna,“ segir Ásrún. Ásrún Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir tilfinningarnar blendnar.Grindavíkurbær „Þetta eru bara ótrúlega blendnar tilfinningar og þetta er náttúrulega bara hluti af heildarmynd bæjarins, þessar eignir. Eins og ég sagði þá er auðvitað ánægjulegt að vera komin á þennan stað og við þurfum að halda áfram í þessari vegferð.“ Mikilvægt sé að rífa húsin svo hægt sé að hefja framkvæmdir við að tryggja öryggi á svæðinu og þar með fækka afgirtum svæðum í bænum. „Þau standa á sprungum og það þarf að fara í ákveðnar sprunguviðgerðir. Það er ákveðin áætlun sem við erum að vinna út frá. Þessi framkvæmdaáætlun tvö. Þetta er bara liður í ákveðinni heildarmynd,“ segir Ásrún. Flestar eignirnar sem á að rífa eru nú í eigu fasteignafélagsins Þórkötlu en þeir sem hafa ekki selt altjónaðar fasteignir sínar þurfa að semja við Grindavíkurbæ um niðurrif og greiða umsýslukostnað fyrir. „Síðan þegar það er farið í niðurrif þá getur eitthvað komið í ljós og það er þannig að ef kostnaðurinn er lægri þá endurgreiðum við og þá þurfa aðilar jafnframt að borga meira ef þetta kostar meira en það er ákveðin hagkvæmni sem fylgir því að gera þetta svona.“
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Kvikuhlaup og eldgos á Sunhnúksgígaröðinni er komið á tíma samkvæmt öllum breytum sem voru til staðar fyrir fyrri kvikuhlaup. Því gæti gosið hvað úr hverju. Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni segir stofnunina vera í góðu sambandi við Grindvíkinga og að vel sé fylgst með þróuninni. 29. desember 2025 12:54 „Við vitum að áföllin munu koma“ Forseti Alþingis segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis svara þeim álitamálum sem lagt var upp með. Hún telur núverandi almannavarnarkerfi mun betur í stakk búið að takast á við atburði af álíka stærðargráðu en fyrir þrjátíu árum síðan. 16. desember 2025 13:02 Vill finna bróður sinn Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar. 12. desember 2025 18:08 Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira
Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Kvikuhlaup og eldgos á Sunhnúksgígaröðinni er komið á tíma samkvæmt öllum breytum sem voru til staðar fyrir fyrri kvikuhlaup. Því gæti gosið hvað úr hverju. Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni segir stofnunina vera í góðu sambandi við Grindvíkinga og að vel sé fylgst með þróuninni. 29. desember 2025 12:54
„Við vitum að áföllin munu koma“ Forseti Alþingis segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis svara þeim álitamálum sem lagt var upp með. Hún telur núverandi almannavarnarkerfi mun betur í stakk búið að takast á við atburði af álíka stærðargráðu en fyrir þrjátíu árum síðan. 16. desember 2025 13:02
Vill finna bróður sinn Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar. 12. desember 2025 18:08