Stærsta stund strákanna okkar Sindri Sverrisson skrifar 18. janúar 2026 09:02 Hvernig smakkast? Sigfús Sigurðsson og Logi Geirsson brugðu á leik eftir fyrstu og einu Ólympíuverðlaun handboltalandsliðsins hingað til. VÍSIR/VILHELM Strákarnir okkar standa í ströngu á EM karla í handbolta þessa dagana. Stærsta stund liðsins hingað til er án vafa þegar liðið vann Ólympíusilfrið í Peking 2008, enda ein minnisverðustu tíðindi í sögu íslenska lýðveldisins, svo notuð séu orð Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta.
Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnarsson var í Peking og festi þessa ógleymanlegu stund á filmu, þegar Ísland varð fámennasta þjóð sögunnar til að vinna Ólympíuverðlaun. Það gerðu strákarnir okkar með því að tapa aðeins einum leik í riðlakeppninni, vinna Pólland í 8-liða úrslitum, 32-30, og svo Spán í undanúrslitum, 36-30. Þó að liðið hafi svo tapað gegn Frakklandi í úrslitaleiknum, 28-23, stendur eftir afrek sem íslenska þjóðin gleymir aldrei. Ólafur Stefánsson var ekki bara einn albesti, eða bara besti, leikmaður íslenska landsliðsins heldur einhvers konar andlegur leiðtogi líka. Hér lifir hann sig algjörlega inn í eitthvað sem á gekk í 33-31 sigrinum gegn Rússum.VÍSIR/VILHELM Ingimundur Ingimundarson klár í að taka miðjuna hratt í 33-29 sigrinum gegn Þjóðverjum. Þeir Sverre Jakobsson mynduðu stórkostlegt par í hjarta íslensku varnarinnar.VÍSIR/VILHELM Ísland vann Pólland í 8-liða úrslitum og svo Spán í undanúrslitum, eftir afar spennandi riðlakeppni. Strákarnir okkar fögnuðu vel á sigurstundum og íslenska þjóðin ekki síður enda fylgdist hún öll með heima á Fróni.VÍSIR/VILHELM Eina tap Íslands á Ólympíuleikunum, fram að úrslitaleiknum við Frakka, var gegn Suður-Kóreu, 22-21. Björgvin Páll Gústavsson sló í gegn á leikunum en hann gat ekki komið í veg fyrir tapið gegn Kóreumönnum.VÍSIR/VILHELM Guðjón Valur Sigurðsson nýtir hér ógnvænlegan stökkkraft sinn í jafnteflinu við Danmörku í riðlakeppninni, 32-32. Guðjón skoraði sex mörk í leiknum en markahæstur var Snorri Steinn Guðjónsson með átta mörk, eftir að hafa jafnað úr víti fjórum sekúndum fyrir leikslok.VÍSIR/VILHELM Sverre Jakobsson og Logi Geirsson með Guðjón Val Sigurðsson í fanginu eftir dramatíkina í jafnteflinu við Danmörku. Þar vannst stig sem reyndist dýrmætt.VÍSIR/VILHELM Það er oft mikill hamagangur á hliðarlínunni og hér er Sverre Jakobsson búinn að grípa í Guðmund þjálfara, í spennuleiknum gegn Dönum í riðlakeppninni.VÍSIR/VILHELM Lætin voru mikil í slagnum við Dani í riðlakeppninni og hér eiga Guðjón Valur Sigurðsson og Sigfús Sigurðsson eitthvað vantalað við Ulrik Wilbek, þjálfara Danmerkur. Wilbek átti síðar eftir að ráða Guðmund Guðmundsson sem eftirmann sinn hjá danska landsliðinu, sem skilaði Dönum þeirra fyrsta Ólympíugulli í handbolta karla.VÍSIR/VILHELM Róbert Gunnarsson, línumaðurinn magnaði, í hörðum átökum við Egypta í 32-32 jafntefli liðanna í riðlakeppninni. Ísland endaði einu stigi fyrir ofan Þýskaland sem komst ekki áfram í 8-liða úrslitin. Egyptaland sat einnig eftir.VÍSIR/VILHELM Ólafur Stefánsson og Sigfús Sigurðsson fagna hér ákaft eftir sigurinn gegn Pólverjum í 8-liða úrslitum, 32-30. Þar með var ljóst að Ísland myndi spila um verðlaun á leikunum.VÍSIR/VILHELM Ólafur Stefánsson í mikilli glímu í sigrinum gegn Spánverjum í undanúrslitum. Hann var valinn í stjörnulið mótsins ásamt Guðjóni Val og Snorra Steini.VÍSIR/VILHELM Guðjón Valur Sigurðsson steytir hnefann í sigrinum ógleymanlega gegn Spánverjum í undanúrslitum, sem tryggði strákunum okkar Ólympíuverðlaun.VÍSIR/VILHELM Landskunnir leikarar og allir aðrir Íslendingar fögnuðu dátt þegar fyrstu Ólympíuverðlaun handboltalandsliðsins voru í höfn, með 36-30 sigri gegn Spáni í undanúrslitum. Án vafa ein allra stærsta stund í íþróttasögu þjóðarinnar.vísir/Vilhelm Ógleymanleg mynd sem lýsir svo vel tilfinningum Íslendinga eftir sigurinn gegn Spáni. Sigfús Sigurðsson leggur hrammana utan um höfuð Ólafs Stefánssonar sem leyfir öllum tilfinningunum að brjótast út. Þetta var stundin. Þarna voru Ólympíuverðlaunin tryggð.VÍSIR/VILHELM Logi Geirsson og Ólafur Stefánsson mættu í viðtal til Adolfs Inga Erlingssonar hjá RÚV eftir sigurinn gegn Spáni í undanúrslitum. Til hans mætti einnig Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti, og forsetafrúin Dorrit Moussaieff sló í gegn þegar hún brá sér inn í viðtalið og sagði: „Ísland er ekki lítið land, það er stórasta land í heimi“.VÍSIR/VILHELM Ásgeir Örn Hallgrímsson einbeittur í loftinu og tilbúinn að negla framhjá Thierry Omeyer í úrslitaleiknum gegn Frökkum.VÍSIR/VILHELM Þó að Ólympíusilfur Íslands hafi vakið heimsathygli og Guðmundur Guðmundsson líti stoltur um öxl í dag þá var hann svekktur eins og sjá má, eftir tapið í úrslitaleiknum. Frakkar voru þar mun sterkari og unnu 28-23 sigur.VÍSIR/VILHELM VÍSIR/VILHELM Landsliðsþjálfari Íslands í dag, Snorri Steinn Guðjónsson, glaðbeittur með Ólympíusilfrið ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni, sem nú þjálfar Gummersbach, og Ólafi Stefánssyni sem nú sér um að gagnrýna Snorra og íslenska liðið á RÚV. Einnig má sjá hornamanninn Sturlu Ásgeirsson og Arnór Atlason, sem nú aðstoðar Snorra með íslenska landsliðið.vísir/Vilhelm Hópurinn sem hampaði silfurverðlaununum. Leikmennina þekkja flestir Íslendingar, sem og þjálfarann Guðmund Guðmundsson og aðstoðarmenn hans Gunnar Magnússon og Óskar Bjarna Óskarsson. Á myndinni eru einnig Pétur Örn Gunnarsson sjúkraþjálfari, Ingibjörg Ragnarsdóttir nuddari, Einar Þorvarðarson þáverandi framkvæmdastjóri HSÍ, og Brynjólfur Jónsson læknir.VÍSIR/VILHELM
Ólympíuleikar Handbolti Landslið karla í handbolta Einu sinni var... Ljósmyndun Myndasögur Vilhelms Tengdar fréttir Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Þann 18. apríl 2007 varð einn alvarlegasti eldsvoði í sögu Reykjavíkur þegar stórbruni braust út í húsnæði við Austurstræti, í hjarta miðborgarinnar. Eldurinn breiddist hratt út og olli gríðarlegum skemmdum á hluta elstu byggðar borgarinnar, á svæði sem gegnt hafði mikilvægu hlutverki í borgarlífi Reykjavíkur um áratugaskeið. 11. janúar 2026 08:02 Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum. 4. janúar 2026 09:02 Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01 Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00 Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03 Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti KR - Keflavík | Oddaleikur í Vesturbænum Körfubolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Sjá meira
Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Þann 18. apríl 2007 varð einn alvarlegasti eldsvoði í sögu Reykjavíkur þegar stórbruni braust út í húsnæði við Austurstræti, í hjarta miðborgarinnar. Eldurinn breiddist hratt út og olli gríðarlegum skemmdum á hluta elstu byggðar borgarinnar, á svæði sem gegnt hafði mikilvægu hlutverki í borgarlífi Reykjavíkur um áratugaskeið. 11. janúar 2026 08:02
Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum. 4. janúar 2026 09:02
Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01
Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00
Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03