Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Atli Ísleifsson skrifar 19. janúar 2026 10:40 Sultartangastöð við Þjórsá. Landsvirkjun Landsvirkjun hyggst nýta góða vatnsstöðu til að ráðast í stór viðhalds- og endurbótaverkefni sem erfitt er að komast í við eðlilegar aðstæður í vinnslukerfinu. Viðamest þeirra verkefna er stækkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þar segir að staða vatnsbúskapar á vinnslusvæðum Landsvirkjunar sé nú með allra besta móti miðað við árstíma. „Ástæður þessa má rekja til þess að upphafsstaða lóna í haust var mjög góð, niðurdráttur hófst tiltölulega seint og desember var gjöfull með hlýindum og miklu innrennsli. Búið í haginn fyrir stækkun Í ljósi góðrar vatnsstöðu skoðar Landsvirkjun nú að ráðast í stór viðhalds- og endurbótaverkefni. Á næstu dögum verður boðin út víkkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar og verður endanleg ákvörðun tekin í kjölfarið. Þær framkvæmdir kalla á að stöðin verði tekin úr rekstri frá apríl næstkomandi og fram á haustmánuði. Markmiðið með framkvæmdinni er að draga úr falltöpum og búa í haginn fyrir stækkun stöðvarinnar í framtíðinni. Þetta verkefni bætist við önnur stór verkefni sem fyrirhuguð eru í sumar, þ.á m. viðgerðir við Vatnsfellsstöð en vegna þeirra er áætlað að taka stöðina úr rekstri í u.þ.b. 6 vikur. Einnig stendur til að halda áfram viðgerðum á Þórislokum sem stýra rennsli úr Þórisvatni en viðgerðir á mannvirkjum og búnaði þar hafa staðið yfir undanfarin ár. Þá krefst undirbúningur að stækkun Sigöldustöðvar þess að stöðin sé tekin úr rekstri í u.þ.b. 2 mánuði. Sigöldustöð verður stækkuð um allt að 65 MW með því að bæta við fjórðu vélinni, sem og fjórðu þrýstipípunni. Eftir stækkun er gert ráð fyrir að virkjunin skili allt að 215 MW afli, í stað þeirra 150 MW sem hún býr nú að,“ segir í tilkynningunni.
Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Rangárþing ytra Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira